Sjúkraliðar gagnrýna harðlega óþolandi vinnuálagi og undirmönnun á öllum deildum Landspítala og skora á heilbrigðisráðherra að beita sér fyrir raunhæfum aðgerðum til lausnar á bráðavanda Landspítalans.Í ályktun fjölmenns fundar sjúkraliða á spítalanum frá því í gærkvöld, kemur fram að álagið hafi valdið og valdi starfsmönnum óbætanlegu heilsuleysi, kvíða og auknu óöryggi í starfi.
Þá mótmæla sjúkraliðar því sem þeir kalla ómarkvissum og tilviljunarkenndum ákvörðunum stjórnenda sjúkrahússins til sparnaðar. Óréttlætanlegt sé að segja upp sjúkraliðum með áratuga reynslu að baki á vökudeild spítalans, án faglegra raka. Sjúkraliðar geti ekki sætt sig við slíkt.
-Auglýsing-
www.ruv.is 23.03.2010
-Auglýsing-