Skilmálar

1. Tilgangur vefsins

Hjartalif.is er fræðslu- og upplýsingavefur um hjartaheilsu, lífsstíl og tengd málefni. Allt efni á síðunni er eingöngu ætlað til almennra upplýsinga og fræðslu.
Efnið kemur ekki í stað læknisfræðilegrar greiningar eða meðferðar og lesendur skulu ávallt leita til læknis eða annarra heilbrigðisstarfsmanna við heilsufarslegum vandamálum eða ef vafi leikur á einkennum.

2. Ábyrgðarleysi

Hjartalif.is ber enga ábyrgð á beinu eða óbeinu tjóni sem kann að hljótast af notkun vefsins, þar með talið ákvarðanatöku sem byggir á efni síðunnar. Notendur bera sjálfir ábyrgð á eigin heilsu og því að leita viðeigandi aðstoðar.

3. Notkun efnis

Allt efni á Hjartalif.is fellur undir höfundarrétt nema annað sé sérstaklega tekið fram.
Heimilt er að deila efni með tilvísun í uppruna (Hjartalif.is) en óheimilt er að afrita eða birta efni í heild án skriflegs leyfis.

4. Auglýsingar og samstarf

Á Hjartalif.is geta verið birtar auglýsingar eða efni í samstarfi við þriðja aðila. Slíkt efni er merkt sérstaklega svo ljóst sé hvenær um auglýsingu eða samstarfsgrein er að ræða.

5. Kökur (cookies)

Vefurinn notar vafrakökur til að bæta upplifun notenda og safna tölfræðilegum upplýsingum, m.a. með Google Analytics, Meta Pixel og Plausible Analytics.
Þú getur stillt vafrann þinn til að hafna kökum en það getur haft áhrif á virkni vefsins.

6. Persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga

Ef þú skráir þig á póstlista eða sendir inn upplýsingar (t.d. netfang eða nafn) eru þær aðeins notaðar til samskipta við þig og eru ekki afhentar þriðja aðila nema lög krefjist þess.
Hjartalif.is vinnur með persónuupplýsingar í samræmi við gildandi lög um persónuvernd (GDPR).

7. Breytingar á skilmálum

Skilmálarnir geta tekið breytingum í samræmi við þróun vefsins eða breytingar á lögum. Breytingar verða birtar á þessari síðu og taka gildi við birtingu.

8. Lög og varnarþing

Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum. Rísi ágreiningur skal hann borinn undir Héraðsdóm Reykjavíkur.

Uppfært 21.09.2025