
Útlimaæðasjúkdómur, oft nefndur Peripheral Arterial Disease (PAD) á ensku, er algengur en oft vangreindur sjúkdómur.
Sjúkdómurinn lýsir sér þannig að slagæðar í útlimum og þá einkum fótleggjum þrengjast eða stíflast vegna æðakölkunar. Þetta skerðir blóðflæði til vöðva og vefja, veldur verkjum og getur í alvarlegum tilfellum leitt til vefjadauða og aflimunar.
Það sem margir átta sig ekki á er að PAD er ekki bara „fótavandamál“. Hann er sterkt viðvörunarmerki um víðtæka æðakölkun í líkamanum og margfaldar áhættuna á bæði hjartaáfalli og heilablóðfalli.
Hvað veldur PAD og hverjir eru í áhættu?
Orsökin er æðakölkun, fitu og kólesterólútfellingar sem safnast upp í slagæðum og þrengja þær. Helstu áhættuþættir eru:
- Reykingar – margfaldar áhættu
- Sykursýki
- Hár blóðþrýstingur og hár kólesteról
- Aldur, sérstaklega yfir 65 ára
- Offita og erfðir
Einkenni og framgangur
PAD getur verið lúmskursjúkdómur og allt að helmingur sjúklinga er einkennalaus. Algengustu einkenni eru:
- Óþægindi eða verkirí fótleggjum við göngu sem hverfur í hvíld
- Kuldi eða dofi í fótum
- Föl húð eða sár sem gróa illa
- Minnkaður hárvöxtur á fótleggjum
Í alvarlegustu tilfellum verður blóðflæðið svo skert að vefjadauði og aflimun verða raunveruleg hætta.
Tenging við hjarta og heila
Útlimaæðasjúkdómur er nátengdur hjarta- og heilaæðum. Rannsóknir sýna að allt að 60% sjúklinga með PAD eru einnig með kransæðasjúkdóm. Þetta þýðir að ef greining fæst á PAD er brýnt að meta heildarhættu á hjartaáfalli og heilablóðfalli og meðhöndla áhættuþættina markvisst.
Greining
- Ankle-brachial index (ABI): einföld blóðþrýstingsmæling í ökkla og upphandlegg – gildi < 0,90 bendir til PAD
- Ómskoðun (Doppler)
- Æðarannsóknir (CT/MR angiography eða hefðbundin angiography) við flóknari tilfelli
Meðferð
Lífsstílsbreytingar eru grunnurinn:
- Reykingastopp
- Regluleg gönguþjálfun undir handleiðslu
- Hjartavænt mataræði
Lyfjameðferð:
- Statín lyf gegn hækkuðu kólesteróli
- Blóðflöguhemjandi lyf (aspirin eða clopidogrel)
- Lyf við háþrýstingi og sykursýki eftir þörfum
Ífarandi meðferð:
- Æðavíkkun (angioplasty) með eða án stoðnets
- Æðaaðgerðir (bypass)
- Í alvarlegum tilfellum: aflimun
Að lokum
Útlimaæðasjúkdómur er meira en staðbundið blóðrásarvandamál hann er rautt viðvörunarljós um heildarheilsu æðakerfisins. Með snemmbærri greiningu, markvissri meðferð og lífsstílsbreytingum má draga úr hættu á alvarlegum fylgikvillum, ekki aðeins í fótum heldur einnig í hjarta og heila.
Björn Ófeigs.
Heimildir
Cleveland Clinic – Peripheral Artery Disease (PAD)
CDC – About Peripheral Arterial Disease
Mayo Clinic – Symptoms and Causes
NHLBI – Peripheral Artery Disease
Merck Manuals – Peripheral Arterial Disease
Verywell Health – Critical Limb Ischemia
New York Post – PAD more common than thought







































