
Það var bæði sérstakt og pínu skrýtið að fá heimsókn frá Landanum sem fylgdi mér eftir í verkefninu mínu Hjólað fyrir hjartað.
Við spjölluðum um það hvernig það er að lifa með alvarlega hjartabilun, áskoranirnar sem fylgja því og hvernig lífið breytist þegar maður neyðist til að hugsa öðruvísi um heilsuna, orkuna og framtíðina.
Við ræddum líka mataræði, lífsstíl og það sem skiptir mig kannski mestu máli í dag – að finna leiðir til að njóta lífsins þrátt fyrir veikindin.
Fyrir mig hafa hjólreiðarnar orðið meira en bara hreyfing. Þær eru ákveðin frelsistilfinning. Að komast út í ferskt loft, finna vindinn og kyrrðina hjálpar bæði líkama og sál. Rafmagnshjólið hefur líka opnað dyr sem ég hélt á tímabili að væru að lokast. Ég get stýrt álaginu betur og notið þess að hreyfa mig án þess að keyra mig alveg út.
Hér fyrir neðan er klippt myndskeið úr Landanum.
Það er nefnilega ekki alltaf verið að eltast við met þegar maður lifir með hjartabilun. Stundum snýst þetta einfaldlega um að halda áfram. Að gefast ekki upp. Að finna gleðina í litlu hlutunum.
Ef þessi umfjöllun getur hvatt einn einstakling til að hreyfa sig aðeins meira, hugsa betur um hjartað sitt eða einfaldlega trúa því að lífið geti áfram verið gott þrátt fyrir veikindi, þá er markmiðinu náð.
Og já… það er eitthvað alveg sérstakt við að hjóla fyrir hjartað. 🚴❤️
Björn Ófeigs.
Tengt efni
Hjólað fyrir hjartað um Eyjafjörð
Hrafnagilshringurinn
Hjólað um Reykjavík































