
Þegar haustið gengur í garð og myrkrið og kuldinn læðist að kemur inflúensan og bólusetningatímabilið hefst á ný.
Fyrir flesta er inflúensubólusetning einföld varúðarráðstöfun, en fyrir fólk með hjarta- og æðasjúkdóma getur hún verið mun meira en það. Bólusetning getur minnkað einkenni og jafnvel bjargað mannslífi.
Flensan setur álag á hjartað
Inflúensa er leiðindasjúkdómur og orsakar ekki bara kvef og slppleika. Hún veldur bólgusvari í líkamanum, hækkar líkamshita og eykur álag á hjarta og æðakerfi. Fyrir fólk með hjartabilun eða veikburða hjarta getur slíkt álag leitt til versnunar á einkennum og jafnvel hjartaáfalls.
Rannsóknir hafa sýnt að hætta á hjartaáfalli eykst allt að sexfalt fyrstu dagana eftir inflúensusýkingu. Það er því ástæða til að taka þetta alvarlega.
Bólusetningin minnkar áhættuna
Á undanförnum árum hafa margar rannsóknir sýnt að árleg inflúensubólusetning dregur úr líkum á hjartaáföllum, innlögnum á sjúkrahús og dauðsföllum hjá fólki með hjarta- og æðasjúkdóma.
Í einni stærstu rannsókninni, sem birt var í JAMA Cardiology, kom fram að sjúklingar sem fengu bólusetningu innan viku frá hjartaáfalli voru 28% ólíklegri til að látast eða fá nýtt hjartaáfall næstu mánuðina.
Evrópsku hjartasamtökin (ESC) mæla eindregið með árlegri inflúensubólusetningu fyrir alla sem hafa hjarta og æðasjúkdóma og á það sérstaklega við um hjartabilaða, aðra langveika og aldraðra.
Hjartabilaðir og langveikir
Hjartabilun getur verið viðkvæmt og brothætt ástand. Lítið álag getur snúið hjartabilun til verri vegar og inflúensa getur orsakað mikið álag.
Rannsóknir hafa sýnt að hjartabilaðir sem fá árlega bólusetningu eru síður lagðir inn á sjúkrahús og lifa lengur. Það má því segja að þessi einfalda sprauta sé eitt áhrifaríkasta heilsuráðið sem hjartasjúklingur getur fylgt.
Bólusetning á hverju hausti
Inflúensuveirur breytast á hverju ári og bóluefnið er uppfært í takt við það. Þess vegna þarf að bólusetja sig árlega.
Best er að láta bólusetja sig í október eða nóvember, áður en inflúensan fer af stað en það er aldrei of seint, bólusetning í desember eða janúar skilar sínu.
Örugg og þolist vel
Inflúensubólusetning er almennt örugg fyrir fólk með hjartasjúkdóma. Algengustu aukaverkanir eru vægar, smá eymsli í handlegg eða vægur hiti í einn dag.
Undantekningin er ef þú hefur fengið alvarlegt ofnæmi fyrir bóluefni áður þá er rétt að ræða við lækni áður en bólusetning fer fram.
Að lokum
Fyrir hjartasjúklinga og langveika er inflúensubólusetning einföld leið til að vernda hjartað. Hún getur minnkað líkur á innlögnum, dregið úr hjartaáföllum og bætt lífslíkur.
Það er engin ástæða til að seinka bólusetnnngunni, þessi litla sprauta getur skipt sköpum. Þess má geta að hægt er að panta tíma í bólusetningu á heilsuveru.is.
Björn Ófeigs.
Heimildir:
- European Society of Cardiology – Vaccination in patients with cardiovascular disease
https://pmc.ncbi.nlm.nih.gov/articles/PMC9437400 - JAMA Cardiology – Influenza Vaccination After Myocardial Infarction (IAMI)
https://jamanetwork.com/journals/jamacardiology/fullarticle/2838476 - PubMed – Influenza vaccination and major adverse cardiovascular events
https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/37370193 - Mayo Clinic – Flu shots and heart disease
https://www.mayoclinic.org/diseases-conditions/heart-disease/in-depth/flu-shots/art-20044238







































