-Auglýsing-

Faðmlög auka lífsgæði og eru góð fyrir hjartað

Faðmlög er frábær leið til að sína væntumþykju og þau auka lífsgæði okkar.

Kovid hafði margvíslegar afleiðingar og ein var sú að það var mælt með því að fólk hætti að faðmast. Flestum þótti þetta erfitt og undrar engan. Faðmlög eru einstaklega jákvæð leið til samskipta og til að sýna væntumþykju. Vinir faðmast og við sýnum fólkinu okkar væntumþykju með faðmlögum.

Við sýnum fólki velþóknun, þakklæti, gleði, fyrirgefningu auk þess tjáum ást okkar með faðmlögum.
Faðmlög eru frábær leið til að sýna tilfinningalega fullnægju, en faðmlög bæta líka hjartaheilsu. En faðmlög geta verið góð fyrir heilsuna á svo margan hátt og sumt gæti komið þér á óvart.

Hvað gera faðmlög fyrir okkur?

1. Faðmlög minnka hættuna á hjarta og æðasjúkdómum.

Hár blóðþrýstingur er einn af áhættuþáttum hjarta og æðasjúkdóma. Rannsóknir hafa sýnt að faðmlög lækka blóðþrýsting og minnka þar með hættuna á hjarta og æðasjúkdómum. Fyrir fólk með veik hjörtu og háan blóðþrýsting er þetta sennilega mesti heilsufarslegi ávinningur faðmlaga.

2. Faðmlög losa um streitu og róa þig.

Nokkrar rannsóknir hafa sýnt að faðmlög gera þig hamingjusamari (kemur á óvart, eða hvað?). Faðmlög auka framleiðslu oxytocin. Þetta hormón leysir úr læðingi tengsla og umhyggju viðbrögð og þetta hormón hjálpar þér að slaka á og losna við kvíða sem er hvorutveggja gott fyrir hjartaheilsu þína.

3. Faðmlög eru góð fyrir sambandið.

Þegar þú hugsar um það er það nokkuð augljóst. En veistu af hverju faðmlög eru góð fyrir sambandið? Faðmlög losa um hormónin seratonín og dopamín. Þessi hormón sjá til þess að þér líði vel og koma þér í gott skap. Niðurstaðan er sú að þér finnst þú standa þeirri manneskju nær sem lætur þér líða betur. Gott samband hefur auk þess góð áhrif á heilsu í heild sinni, þar með talið hjartaheilsu.

Held að ekki þurfi að efast um gagnsemi þess að faðmast. Ég hvet þig til faðma þá sem þér þykir vænt um en auk þessa stuðla faðmlög að langlífi, sterkara ónæmiskerfi og hærra sjálfsmati.

- Auglýsing-

Faðmlög eru því góð leið til meiri lífsgæða.

Björn Ófeigs.

Heimild: goodrelaxation.com

Munið eftir að læka við okkur á Facebook  

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-