-Auglýsing-

Góð tannhirða er hjartans mál

Vísindamenn segja að þeir sem bursta ekki tennurnar tvisvar sinnum á dag eigi í hættu á að fá hjartasjúkdóma. Þetta kemur fram í skoskri rannsókn sem 11.000 manns tóku þátt í.

Fram kemur í rannsókninni, sem er birt í The British Medical Journal, að þeir sem hirða illa um tennurnar og tannholdið eigi í aukinni hættu á að fá hjartasjúkdóma miðað við þá einstaklinga sem bursta tennurnar tvisvar á dag.

Þetta er í fyrsta sinn sem vísindamenn rannsaka hvort tengsl séu á milli tíðni tannburstunar og þess hvort fólk geti fengið hjartasjúkdóma. 

Þetta styður fyrri rannsóknir sem hafa sýnt fram á tengsla á milli tannholdssjúkdóma og hjartasjúkdóma.

Fram kemur á vef BBC að góð tannheilsa sé aðeins einn þáttur í góðri heilsu. Vitað sé að bólgur í líkamanum, m.a. í munni og tannholdi, geti haft slæm áhrif á æðakerfi, þ.e. leitt til þess að æðar stíflist sem geti leitt til hjartaáfalls.

www.mbl.is 28.05.2010

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-