-Auglýsing-

Millimál í fernu – Næring+

Næring+ er góður kostur fyrir þá sem eru að byggja sig upp eftir veikindi eða vantar hentugan millibita.

Kynning. Það kannast margir við þá staðreynd að þeir sem eiga við heilsubrest að stríða eða eru að stíga upp eftir veikindi hafa oft ekki mikla matarlyst og nærast hugsanlega ekki nógu vel.

Þetta á ekki síst við einstaklinga sem komnir eru yfir miðjan aldur. Mikilvægt að geta fengið góða næringu milli mála til að byggja sig upp og þar hefur MS komið með hentuga og góða lausn sem er stútfull af próteini.

Næring+ er næringardrykkur frá Mjólkursamsölunni en um er að ræða orku- og próteinríkan drykk sem hentar vel þeim sem þurfa að þyngjast eða sporna við þyngdartapi. Næring+ er vítamín- og steinefnabættur og getur m.a. hentað eldra fólki, en með aldrinum minnkar oft matarlystin þó að þörf fyrir orku, prótein, vítamín og steinefni sé enn til staðar. Til að fyrirbyggja vöðvarýrnun og þyngdartap hjá eldra fólki er mikilvægt að það neyti orku og próteina í ríkum mæli og getur drykkurinn einnig hentað þeim sem vilja handhægt orku- og próteinríkt millimál.

„Við þróun á Næringu+ var tekið mið af nýjum ráðleggingum um mataræði eldra fólks sem gefnar voru út í desember 2018 af Embætti landlæknis, ásamt Rannsóknarstofu HÍ og Landspítala í öldrunarfræðum. Sérstök áhersla var lögð á að hafa drykkinn eins prótein- og orkuríkan og hægt var án þess að láta það bitna á bragðgæðum vörunnar,“ segir dr. Björn S. Gunnarsson, vöruþróunarstjóri MS. Í ráðleggingunum kemur fram að til að uppfylla næringarþörf hjá eldra fólki með minnkaða matarlyst er mælt með orku- og próteinríku fæði og m.a. mælt með mjólkurvörum sem góðum próteingjafa.

Næring+fæst í 250 ml fernum með súkkulaðibragði og kaffi-/súkkulaðibragði, en hver ferna af drykknum inniheldur 360 kcal og 22 g prótein. Þrátt fyrir að drykkurinn sé orkuríkur er gætt að því að stilla magni viðbætts sykurs í hóf og engin sætuefni eru í honum. Búið er að kljúfa allan mjólkursykur (laktósa) í Næringu+, þannig að drykkurinn á að henta öllum sem hafa laktósaóþol og þá er hann einnig án glútens.

Næring+ er góður valkostur til að hjálpa við að tryggja næga orkuinntöku og uppfylla próteinþörf en best er að nota drykkinn milli mála og gæta jafnframt að því að fá reglulegar máltíðir.

- Auglýsing-

Hægt að skoða nánar um Næringu+ hér https://www.ms.is/vorumerki/naering

Pistillinn er unnin í samvinnu við MS.

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-