-Auglýsing-

Efnaðir geta valið sér lyf en fátækir ekki

Það kerfi sem heilbrigðisyfirvöld hafa sett á laggirnar til að ákveða hvaða lyf eru niðurgreidd í hverjum flokki hefur þegar leitt til mismununar í heilbrigðiskerfinu, segir Olgeir Olgeirsson, framkvæmdastjóri Portfarma.

Stefna ríkisins er að niðurgreiða aðeins ódýrasta lyfið í hverjum flokki. Því hafa meðal annars læknar mótmælt, þar sem aukaverkanir og virkni lyfja er mismunandi eftir einstaklingum.

-Auglýsing-

Þetta kerfi heldur opnum þeim möguleika fyrir efnað fólk að kaupa lyf sem þeim þykir henta best, án niðurgreiðslu. Á sama tíma þurfa þeir sem ekki hafa fé til þess að láta sér nægja þau lyf sem ríkið kýs að niðurgreiða, segir Olgeir.

- Auglýsing-

Sjúklingar sem ekki geta notað lyfin sem heilbrigðisyfirvöld niðurgreiða geta sótt sérstaklega um að fá önnur lyf niðurgreidd.

Olgeir segir ríkið beinlínis vinna gegn því að lyfjaverð lækki á Íslandi. Dæmi um það sé hækkun á kostnaði við skráningu nýrra lyfja, úr 115 þúsundum króna í ríflega 1,8 milljónir fyrir um ári. Þjónustan hafi ekki aukist að sama skapi, enda taki nú mun lengri tíma að fá lyf skráð.

„Það er búið að reka líkkistu­naglana í þennan iðnað, íslenski markaðurinn er hreinlega ekki áhugaverður lengur,” segir Olgeir.

- Auglýsing -

Hann segir þetta þegar hafa leitt til þess að mun færri ódýr samheitalyf séu sett á markað. Þá sé samkeppnin drepin niður með því að niðurgreiða aðeins ákveðin lyf, enda sé þá lítil ástæða fyrir lyfjafyrirtæki að koma með ódýrari samheitalyf á markað.

– bj

www.visir.is 20.05.2010

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.
-Auglýsing-

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-