-Auglýsing-

Hjólað fyrir hjartað í nágrenni Akureyrar (myndskeið)

Akureyri og sveitirnar þar fyrir innan eru einstaklega fallegar og unun að hjóla þar um í fallegu veðri.

Það þarf ekki að hafa mörg orð um að Akureyri og nágrannasveitir eru fagrar. Og ekki bara að það sé fallegt heldur er veðrið líka betra en syðra segja norðanmenn.

Það er í það minnsta staðreynd að veðurfarið síðustu vikurnar á þessu svæði hefur hentað einstaklega vel til hjólreiða.

-Auglýsing-

Við fjölskyldan nutum þess að vera í sumarhúsi í Vaðlaheiðinni í rúmar tvær vikur og hjólið mitt hann Bjartur var með í för og við hjóluðum fyrir hjartað sem aldrei fyrr. Bjartur er rafmagnshjól og er í raun forsendan fyrir því að ég get hjólað þar sem ég er hjartabilaður og hjartað með takmarkaða afkastagetu. Þetta lýsir sér í rauninni þannig að ef stóru vöðvana vantar meira blóðflæði er vesen. Rafmótorinn er því mín leið til að bæta upp lélega afkastagetu hjartans.

- Auglýsing-

Veðrið var fyrir norðan var dásemdin ein. Nánast allan tímann með hitastigi upp á 17-22 gráður og mörgum sólarstundum.

Það er eitt að hjóla fyrir hjartað en svo er nefnilega annað sem þetta hjólabrölt gefur manni. Það er náttúrann. Að upplifa náttúruna á hjóli og njóta síbreytilegs landslags eru stórkostleg lífsgæði. En sjón er sögu ríkari og í myndskeiðinu hér að neðan fer ég með ykkur í ferðalag um Akureyri og nágrenni einn góðviðrisdaginn með honum Bjarti.

Hjólreiðarnar færa með mikið frelsi og tilfinningin að fá vindin í hárið er einstök. Þetta er ekki alltaf spurning um hraða eða vegalengd heldur njóta ferðarinnar, það eru lífsgæði. Auk þess þá gerir þetta hjartanu gott jafnvel þó það sé laskað og ég nýt þess að hjóla fyrir hjartað.

- Auglýsing -

Björn Ófeigs.

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.
-Auglýsing-

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-