
Ný rannsókn frá King’s College London sýnir að fjölbreytni í vali á plöntum í mataræði skiptir enn meira máli en fjöldi skammta. þannig að í staðinn fyrir 5 á dag þá er æskilegt að fara í 11 tegundir á dag, fjölbreytni lykilatriði samkvæmt þessu.
Að borða að minnsta kosti 11 ólíkar plöntutegundir á dag virðist hafa mjög góð áhrif á hjartaheilsu. Hlutfall HDL, góða kólesterólsins hækkar, lægri blóðsykur og mataræðið heilt yfir betra.
Fjölbreytni skiptir meira máli en magnið
Í rannsókninni voru gögn úr National Diet and Nutrition Survey skoðuð og kom í ljós að þeir sem borðuðu yfir 11 tegundir af plöntufæði á dag voru með betri efnaskipti og blóðgildi en þeir sem borðuðu aðeins 5–8. Flestir þátttakendur náðu ekki nema 8 tegundum á dag og sumir einungis 2. Það sem skipti mestu máli var ekki magn, heldur fjölbreytnin.
Plöntufæði í þessu samhengi er ekki bara grænmeti. Það felur líka í sér ávexti, hnetur, baunir, fræ, heil korn, jurtir og krydd.
Hvernig getur þú fjölgað tegundum?
- Bættu við handfylli af hnetum eða fræjum í morgunmatinn
- Veldu eitt nýtt grænmeti á hverjum degi
- Kryddaðu með ferskum jurtum eins og basilíku eða kóríander
- Prófaðu mismunandi baunategundir í súpur og pottrétti
- Notaðu litrík hráefni sem gleðja bæði auga og hjarta
Lítill fyrirhöfn, mikil áhrif
Við sem lifum með hjarta og æðasjúkdóma til lengri tíma þurfum að gefa mataræðinu gaum og hugsa vel um okkur á því sviði. Þetta þurfa ekki að vera mjög dramatískar breytingar þegar við bætum í neyslu plöntufæðis. Við getum bætt einni plöntu í viðbót við diskinn í dag tekur ekki langan tíma að komast upp í 11 tegundir á dag.
Björn Ófeigs.
Heimildir
- King’s College London. UK adults not eating enough plant-based foods, study finds
https://www.kcl.ac.uk/news/uk-adults-do-not-eat-enough-plants - Woman & Home. Forget 5-a-day – this is the number of plant-based foods you need for a healthy diet, new study reveals
https://www.womanandhome.com/health-wellbeing/health-wellbeing-news/new-5-a-day-recommendation-study/ - Zoe Health Study / Tim Spector og samstarfsfólk
https://joinzoe.com/learn/plant-diversity-microbiome









































