-Auglýsing-

Eldri hjólreiðamenn í miklu álagi líklegri til að þróa með sér hjartasjúkdóm.

Hjólreiðar eru frábær leið til að halda sér í góðu formi og tilvalið fyrir hjón að njóta saman.

Ný rannsókn bendir til þess að karlar 50 ára og eldri, sem æfa þolíþróttir (hjólreiðar og þríþraut) af mikilli ákefð til fjölda ára, séu í aukinni hættu á hjartaskemmdum og hættulegum hjartsláttartruflunum.

Hreyfing er óumdeilanlega ein besta heilsumeðferð sem við höfum, en þegar hún er æfð af mikilli ákefð árum saman getur álagið haft ákveðna neikvæða fylgifiska – sérstaklega fyrir hjartað.

-Auglýsing-

Í nýrri rannsókn frá University of Leeds, sem styrkt var af British Heart Foundation, kom fram að eldri karlkyns þolíþróttamenn gætu verið í aukinni áhættu að þróa með sér lífshættulega hjartsláttaróreglu. Rannsóknin birtist í Circulation: Cardiovascular Imaging.

- Auglýsing-

Örvefur í hjarta algengari hjá afreksíþróttamönnum

Rannsakendur skoðuðu 106 hrausta karlmenn yfir fimmtugt sem höfðu æft hjólreiðar eða þríþraut í að minnsta kosti 10 klukkustundir á viku í 15 ár eða lengur. Enginn þeirra var með greindan hjartasjúkdóm eða önnur einkenni frá hjarta.

Í upphafi rannsóknarinnar fóru allir í hjarta-MRI til að kanna örmyndun í hjartavöðva og fengu ígræddan hjartasírita (implantable loop recorder) til að fylgjast með hjartslætti.

Niðurstöðurnar voru sláandi:
47% þátttakenda voru með örvef í hjartanu, aðallega neðst í vinstri slegli -aðal dæluhólfi hjartans. Til samanburðar var þetta eingöngu 11% hjá svipuðum hópi almennra einstaklinga. Þolíþróttamenn með örvef voru 4,5 sinnum líklegri til að fá hættulegar hjartsláttartruflanir.

- Auglýsing -

Hættuleg hjartsláttaróregla algeng meðal þeirra sem höfðu örvef

Á tveggja ára rannsóknartímabilinu fékk 22% þátttakenda að minnsta kosti eitt kast af sleglahraðtakti (ventricular tachycardia, VT) sem er alvarleg hjartsláttartruflun sem getur verið lífshættuleg ef hún varir lengur en nokkrar sekúndur.
78% af þessum 22% voru með örvef í hjarta áður en kastið kom. Þrír þátttakendur fengu langvinn VT-köst sem eru sérstaklega hættuleg.

Saga Brian Cookson – þegar líkaminn stoppar mann í miðri keppni

Meðal þátttakenda var Brian Cookson, 74 ára fyrrverandi forseti Alþjóðahjólreiðasambandsins (UCI). Eftir starfslok fór hann að keppa aftur, en árið 2024 fann hann skyndilega fyrir slappleika á æfingu í „Manchester Velódrominu“.

Hann mældi hjartslátt upp á 238 slög á mínútu og tók það rúmar 15 mínútur að jafna sig. Annað rautt flagg. Þar sem hann var þegar með ígræddan hjartasírita heyrði rannsóknarteymið strax frá honum.

Daginn eftir fékk hann símtal: „Hættu strax að hjóla. Ekki gera neitt meira en að ganga þar til við skoðum þig en þú gætir þurft gangráð með stuðtæki (ICD).“

Það reyndist rétt. Hann hafði fengið hættulegt VT-kast sem án meðferðar getur valdið hjartastoppi. Nokkrum vikum síðar fékk hann tækið (ICD) ígræddan.

Cookson hjólar enn í dag, en hlustar betur á líkamann: „Ef púlsinn nálgast 150 hægi ég strax á.“ Hann hvetur aðra til að gera slíkt hið sama: að leita læknis við óútskýrð einkenni og taka heilsufarsprófanir þegar tækifæri gefst.

Rannsakendur: Þetta á ekki að fæla fólk frá hreyfingu

Stjórnandi rannsóknarinnar, dr. Peter Swoboda frá University of Leeds, segir:

„Þetta þarf ekki að fæla fólk frá reglulegri hreyfingu. Rannsóknin fjallaði um mjög sérhæfðan hóp manna sem hafa æft af mikilli ákefð í áratugi og ekki voru allir með ör í hjarta.“

Hann undirstrikar að fólk með svima, sundl, brjóstverk eða mæði í íþróttum eða hvíld eigi að láta skoða sig.

„Við vitum að hreyfing bætir heilsu og lífsgæði. Markmiðið er að hjálpa fólki að stunda íþróttir á eins öruggan hátt og hægt er.“

Rafmagnshjólreiðar – skynsamleg leið til að njóta hreyfingar með öryggi

Þó rannsóknir eins og þessi vekji spurningar um álag í þolíþróttum er mikilvægt að muna að það eru til margir góðir og öruggir valkostir til að njóta hjólreiða án þess að keyra sig út. Rafmagnshjólreiðar eru frábær kostur – sérstaklega fyrir okkur sem erum með greindan hjartasjúkdóma eða viljum halda álaginu innan skynsamlegra marka. Verkefnið okkar á hjartalif.is „hjólað fyrir hjartað“ er gott dæmi um verkefni sem er sérlega hjartvænt.

Með rafmagnshjóli stjórnar maður hraðanum og álaginu betur. Þú getur fengið allt sem hreyfing hefur upp á að bjóða, ferskt loft, gleðina af því að komast út, styrk og úthald án þess að fara yfir þolmörk. Þetta er einmitt ástæðan fyrir því að ég hjóla á rafmagnshjóli sjálfur auk þess sem ég er með hjartabilun og þarf mikinn stuðning af rafmagninu. Án þess gæti ég ekki staðið í þessu hjólverkefni mínu.

Ég nota Garmin snjallúr og Garmin Edge hjólatölvu til að fylgjast með hjartslætti í rauntíma allt frá upphafi túrsins. Þannig sé ég strax ef púlsinn fer að nálgast efri mörk og get dregið úr krafti áður en ég fer yfir mín persónulegu mörk. Þetta hefur reynst mér ómetanlegt í þessu hjólabrölti mínu og gerir mér kleift að njóta hjólreiða á öruggan hátt.

Skilaboðin eru því þessi: Samspil hreyfingar og heilsu snýst ekki um að keyra sig út heldur að þekkja mörkin, stjórna álaginu og nýta þau hjálpartæki sem gera ferðina bæði öruggari og þægilegri til lengri tíma.

Við þetta má bæra að þeir sem komnir eru yfir fimmtugt ættu að hitta hjartalækni til að fara yfir stöðuna og ver í framhaldinu í virku eftirliti.

Björn Ófeigs.

Tengt efni: https://hjartalif.is/category/hjoladfyrirhjartad/


Heimild

Bikeradar: https://www.bikeradar.com/advice/health/fit-older-male-cyclists-face-these-hidden-heart-risks

British Heart Foundation: https://www.bhf.org.uk/what-we-do/news-from-the-bhf/news-archive/2025/july/heart-scarring-in-veteran-endurance-athletes

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.
-Auglýsing-

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-