-Auglýsing-

Leið til að uppræta ótta og kvíða

Áhyggjur, kvíði og ótti er að sliga marga en það eru sannarlega til lausnir.

Hefur þér stundum liðið það illa að þú ert við það að missa kjarkinn? Hafa áhyggjurnar og streitan verið það yfirþyrmandi að allt virtist vonlaust? Er þetta nokkuð sem þú kannast við? 

Hvað getum við gert þegar vanlíðan og efasemdir sækja að? Hvernig getum við róað hugann, yfirstigið erfiðar tilfinningar og endurheimt sjálfstraustið?

-Auglýsing-

Ég heyrði eitt sinni frásögn af gömlum manni sem var við dauðans dyr. Hann var spurður um hvað það væri sem hann sæi mest eftir þegar hann horfði til baka yfir lífshlaup sitt. Eftir nokkra umhugsun sagðist hann sjá mest eftir öllum þeim tíma sem hann hefði eytt í kvíða og áhyggjur. Hann hafði núna, en of seint, áttað sig á þeirri staðreynd að meira en níutíu prósent af öllu því sem hafði angrað hann og haldið fyrir honum vöku, hafði aldrei átt sér stað.

- Auglýsing-

Má vera að líkt sé farið um þig og gamla manninn, hvað varðar tilgangslausar og óraunhæfar áhyggjur?

En hvað er til ráða?

Hvað getum við gert til að sigrast á áhyggjum og kvíða? Við skulum núna hugleiða áhrifaríka leið til lausnar.

Þegar kvíði, streita og angist sækir að, er mikilvægt að ígrunda vandlega hvað veldur. Hverjir þeir orsaka- og áhrifaþættir eru sem kynda undir og viðhalda nagandi vanlíðan. Eftirfarandi spurningar og atriði geta skipt sköpum þegar við leitum orsakanna:

- Auglýsing -
  • Hvaða tilfinning er áleitin? Gefðu tilfinningunni nafn, nefndu hana upphátt. Er það ótti, reiði, særindi, sektarkennd, sorg eða sár höfnunartilfinning?
  • Gefðu þér góðan tíma og slakaðu á. Leyfðu vanlíðunartilfinningunni að ágerast þar til hún er orðin það áleitin að hún fer að vekja upp hugrenningar og minningar um hliðstæða líðan áður fyrr.
  • Spurðu sjálfan þig: Hefur mér liðið svona einhvern tíma áður?
  • Ef já, í hvaða aðstæðum og í hvaða samhengi? Hvaða einstaklingar í lífi þínu tengjast þeim aðstæðum?
  • Getur verið að þessi tilfinning tengist óþægilegum minningum sem þú hefur vikið þér undan að horfast í augu við?
  • Reyndu að átta þig á orsakasamhenginu, milli vanlíðan og þeirra viðbragða, hugrenninga og minninga, sem kunna að skjóta upp kollinum.
  • Réttmætar, óuppfylltar þarfir í æsku geta til dæmis gert vart við sig á fullorðinsárum. Þær geta orðið áleitnar og valdið erfiðri líðan, til dæmis þrálátri kvíðatilfinningu, minnimáttarkennd eða depurð. Ef við gerum okkur ekki grein fyrir hvað veldur, erum við illa sett.
  • Óleystur kvíðavandi fortíðar getur í sumum tilfellum verið marktækur áhrifaþáttur þess að einstaklingar þróa með sér þunglyndi.
  • Reyndu að koma auga á hugsanlegt samhengi milli erfiðrar líðanar nú og fyrri atburða, minninga eða tilfinninga fortíðar. Grundvallaratriðið er að öðlast næma sýn og vitund um samhengi fortíðar og nútíðar. Þegar við gerum okkur grein fyrir slíku orsakasamhengi gefst okkur mögulega tækifæri til að vinna okkur út úr vandanum. Við verðum í stakk búin til að takast á við raunverulegar orsakir og ástæður. 

Dæmi til nánari skýringar

Gerum ráð fyrir að þú viljir fara af stað með eigin rekstur en ert of hrædd við að taka áhættuna. Hverju sinni sem hugmyndin ber á góma þá bregst þú við með því að segja: „það er allt of mikil áhætta.“ Óttinn er það áleitin að þú ert farin að telja sjálfgefið að ekki sé möguleiki á að láta drauminn rætast, áhættan sé einfaldlega allt of mikil.  Að lokum er þér bent á þá aðferð sem útlistuð er hér að ofan.

Þú byrjar á því að gefa nánari gætur að óttanum gagnvart því að hefja eigin atvinnurekstur. Fljótlega skynjar þú að óttinn tengist fyrst og fremst fjárhagsáhyggjum, óttanum við að lenda í fjárhagslegum hremmingum. En til þess að fara af stað með sjálfstæðan atvinnurekstur þyrftir þú að fjárfesta í tækjum og taka húsnæði á leigu. Einnig, mjög líklega, þyrftir þú að segja starfi þínu lausu með tilheyrandi óvissu um fjárhagslega afkomu.

Eftir að þú hefur áttað þig á því að óttinn tengist fjárhagslegri afkomu, þá er næsta skref til lausnar að greina uppruna kvíðans. Hvort óttinn eigi ef til vill rætur að rekja til erfiðrar kringumstæðna í uppvexti. Nú verða skyndileg áttaskipti þegar þú uppgötvar að ótti við skort og fátækt hefur fylgt þér alla tíð.

Upp koma sársaukafullar minningar um erfiðar fjárhagslegar kringumstæður á uppvaxtarárunum. Þú hugleiðir hvort óttinn við að hefja eigin atvinnurekstur hafið verið upptendraður af erfiðum tilfinningum, hugsunum og æskuminningum þess tíma þegar kringumstæðurnar voru aðrar og verri. Ef svo er þá kemst þú að raun um að ótti við að hefja sjálfstæðan atvinnurekstur á sér ekki lengur neinar raunhæfar forsendur. Aðstæðurnar í dag eru aðrar og betri en á uppvaxtarárum þínum. Þú hefur verið að gera úlfalda úr mýflugu.

Þú hefur núna öðlast skýra innsýn og vitund um rætur og orsakir óttans. Að óttinn nærðist á tilfinningahlöðnum kvíðaminningum fortíðar. Ótti við að hefja eigin atvinnurekstur er því með öllu ástæðulaus.

Þó svo að við séum orðin fullorðin þá lifir oft lengi í gömlum glæðum. Margir glíma áfram við erfiðar tilfinningar úr fortíðinni sem hafa áhrif á líðan þeirra enn í dag.

Í sumum tilfellum er tilfinningavandinn flóknari en svo að við verði ráðið án aðstoðar sálfræðings. Í sálfræðimeðferð er vandinn greindur og rætur hans afhjúpaðar. Markmið sálfræðimeðferðar er að hjálpa einstaklingum að bera kennsl á og yfirstíga erfiðar tilfinningar, hugsanir og hegðun sem vinna gegn andlegri heilsu og lífsgæðum.

Ávinningur sálfræðimeðferðar er fjölþættur. Meðferð eflir vellíðan, öryggiskennd og sjálfstraust og opnar sýn á nýja og betri valkosti. Við verðum að jafnaði betur í stakk búin til að takast af árangri á við krefjandi áskoranir og aðstæður lífsins.

Marteinn Steinar Jónsson
Sérfræðingur í klínískri Sálfræði

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Marteinn Steinar Jónsson
Marteinn Steinar Jónssonhttps://urlausn.is/urlausn-salfraedithjonusta/
Marteinn Steinar er sérfræðingur á sviði klínískrar sálarfræði og hefur yfir þriggja áratuga reynslu af sálfræðistörfum á eigin stofu í Garðabæ, auk sálfræðistarfa í Bretlandi að námi loknu.
-Auglýsing-

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-