-Auglýsing-

Járnbirgðir á miðjum aldri – mikilvægi og áhætta?

Skortur á járni getur lýst sér í mikilli Þreytu og óyndi

Járn er eitt af þessum næringarefnum sem flest okkar taka sem sjálfsögðum hlut. þangað til birgðirnar fara að lækka og líkaminn lætur vita og oft lúmska hátt.

Fyrir fólk 50 ára og eldra geta járnbirgðir skipt verulegu máli fyrir orku, úthald og hjartaheilsu. Þó járnskortur sé algengur hjá yngra fólki, sérstaklega konum, þá verður hann oft yfirleitt meira áberandi eftir því sem við eldumst.

-Auglýsing-

Járn og hjartað – tenging sem margir vita ekki af

Járn skiptir miklu fyrir súrefnisflutning í líkamanum. Ef járnið er lítið á blóðprufum þarf hjartað að vinna mun meira til að koma súrefni til vefjanna. Fyrir fólk með hjartabilun skiptir járn sérstaklega miklu máli. Rannsóknir hafa sýnt að járnskortur og jafnvel án blóðleysis getur aukið einkenni hjartabilunar, minnkað þol og skert lífsgæði. Þarna er gjarnan talað um að ferritín eigi að vera yfir 100.

- Auglýsing-

Í dag er mælt með því að allir hjartabilaðir séu reglulega skimaðir fyrir járnskorti, einmitt vegna þess að viðbót með járni (oftast í æð) getur bætt mæði, orku og daglega virkni.

Þreyta, svimi og hjartsláttatruflanir

Þegar járn vantar er það fyrsta sem fólk tekur eftir oft þreyta sem ekki lagast, jafnvel þótt maður sofi nóg eða hvíli sig. Þessi þreyta er oft ansi mikil, orkuleysi viðvarandi og kemur oft með öðrum einkennum eins og:

  • auknum andþyngslum við minnstu áreynslu
  • svima eða þyngslum í höfði
  • skjálfta eða óþægilegum hjartslætti
  • kulvísi
  • höfuðverk

Hjá fólki með hjarta og æðasjúkdóma er mjög mikilvægt að taka slík merki alvarlega, því þau geta bæði stafað frá hjartanu og eða verið merki um járnskort sem gerir hjartanu erfiðara að sinna sínu hlutverki.

- Auglýsing -

Þeir sem eru í áhættuhópnum 50+

  • Fólk með hjartabilun
  • Konur eftir tíðahvörf með blæðingartruflanir eða meltingarvandamál
  • Fólk á sýruhamlandi lyfjum
  • Eldra fólk með skerta næringarinntöku
  • Þeir sem hafa verið með langvarandi bólgur eða sýkingar
  • Þeir sem neyta grænmetisfæðu og borða lítið af járnríkum plöntum og fá ekki nóg af C-vítamíni

Aldurstengdar breytingar á meltingu gera einnig upptöku járns erfiðari, sem þýðir að jafnvel gott mataræði getur ekki alltaf haldið birgðunum stöðugum.

Að lokum

Fyrir fólk 50 ára og eldra er járnpróf eitt það einfaldasta sem hægt er að gera til að bæta orku, draga úr þreytu og styðja við hjartaheilsu. Það er ótrúlega algengt að fólk labbi um með lágar birgðir án þess að vita af því og þegar járnið er bætt upp batna einkenni oft hraðar en margir gera sér grein fyrir. Ef þú finnur fyrir þreytu, mæði eða óvenjulegum slappleika er alltaf skynsamlegt að biðja um járnmælingu. Það er einfalt og fyrirhafnarlítið.

Björn Ófeigs.


Heimildir

Mayo Clinic – Iron Deficiency Anemia: Symptoms and Causes
https://www.mayoclinic.org/diseases-conditions/iron-deficiency-anemia/symptoms-causes/syc-20355034

NIH – Iron Fact Sheet for Consumers
https://ods.od.nih.gov/factsheets/Iron-Consumer/

Cleveland Clinic – Iron-Deficiency Anemia
https://my.clevelandclinic.org/health/diseases/22824-iron-deficiency-anemia

American Heart Association – What Is Heart Failure?
https://www.heart.org/en/health-topics/heart-failure/what-is-heart-failure

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.
-Auglýsing-

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-