
Þegar við heyrum orðið hjartastopp sjá margir fyrir sér skyndilegan, ófyrirséðan atburð. En nýjar rannsóknir sýna að hjartastopp eru ekki alltaf fyrirvaralaus.
Meira en helmingur þeirra sem fá hjartastopp hafði fengið viðvörunarmerki allt að mánuði áður merki sem margir hundsuðu eða túlkuðu sem eitthvað saklaust.
Hjartastopp verður þegar hjartað hættir skyndilega að slá, yfirleitt vegna truflunar í rafleiðslukerfi hjartans. Hér á landi verður talið að 100–200 hjartastopp eigi sér stað utan sjúkrahúss á ári hverju, og aðeins um fimmtungur lifir en hjartastuðtæki og tími gegna lykilhlutverki í endurlífgun.
Cedars-Sinai rannsóknin – helmingur fékk einkenni áður
Rannsókn sem framkvæmd var við Cedars-Sinai Heart Institute í Los Angeles sýndi að 53% þeirra sem fengu hjartastopp höfðu fundið fyrir einkennum áður.
Þátttakendur voru karlar á aldrinum 35–65 ára sem fengu hjartastopp utan sjúkrahúss í Portland í Oregon á árunum 2002–2012.
Af þeim sem fengu viðvörunarmerki:
-
56% fundu fyrir brjóstverk eða þrýsting
- Auglýsing - -
13% fyrir mæði
-
4% fyrir svima, yfirlið eða hjartsláttarónot
Flestir höfðu undirliggjandi kransæðasjúkdóm, en aðeins helmingur var greindur með hann áður en hjartastoppið varð.
„Ef þú finnur fyrir þessum einkennum – ekki hunsa þau,“ sagði Dr. Sumeet Chugh, hjartalæknir við Cedars-Sinai. „Leitaðu strax á bráðamóttöku.“
Mayo Clinic rannsóknin – líkurnar á að lifa aukast fimmfalt
Svipuð niðurstaða fékkst í rannsókn Mayo Clinic þar sem 839 karlar og konur tóku þátt. Þar kom fram að helmingur fann fyrir einkennum allt að fjórum vikum áður, og engin marktækur munur var á milli kynja.
Þeir sem tóku einkenni sín alvarlega og höfðu samband við neyðarlínuna voru fimm sinnum líklegri til að lifa hjartastoppið af.
„Þetta er skýr áminning um að við þurfum að hlusta á líkama okkar,“ sagði Dr. Sharon Hayes, sérfræðingur hjá Women’s Heart Clinic á Mayo Clinic.
Einkenni sem má ekki hunsa
Ef þessi einkenni gera vart við sig – jafnvel þótt þau virðist væg – skaltu taka þau alvarlega og hafa strax samband við lækni eða hringja í 112:
-
Brjóstverkir eða þrýstingur sem leiðir út í háls, kjálka, handlegg eða bak
-
Skyndileg mæði eða öndunarerfiðleikar
-
Svitakóf eða köld húð
-
Óreglulegur eða hraður hjartsláttur
-
Mikil eða óútskýrð þreyta
Að lokum – hlustaðu á hjartað
Hjartað gefur okkur oft tækifæri áður en það gefst upp – við þurfum bara að hlusta. Ef þú finnur fyrir óvenjulegum verk, mæði, svima eða mikilli þreytu, þá er það ekki veikleiki að leita hjálpar, heldur styrkur sem getur bjargað lífi.
Heimildir
-
Cedars-Sinai Heart Institute – Sex-specific warning symptoms before impending cardiac arrest
-
PubMed – Out-of-hospital cardiac arrest in Iceland 2008–2017 (Hreinsson o.fl., 2020)
-
The Lancet Digital Health – Warning symptoms and imminent cardiac arrest in EMS data (2023)







































