
Svefninn er stundum kallaður „heilsulind náttúrunnar“ – en þegar hann bregst okkur getur það haft afdrifarík áhrif á líkamann, ekki síst á hjartað.
Nýjustu rannsóknir sýna að svefnleysi eykur hættuna á hjartabilun og hjartaáföllum verulega. Hér skoðum við tengsl svefnleysis og hjartasjúkdóma, hvað nýjustu gögn segja okkur og hvernig við getum gripið inn í – áður en svefnerfiðleikar ræna okkur heilsunni.
Hvað er svefnleysi?
Svefnleysi lýsir sér annað hvort með erfiðleikum við að sofna, viðvarandi vökum eða síndurtekinni vöknun um nætur og eða því að vakna óendurnærður þrátt fyrir að hafa sofið. Þetta ástand getur verið tímabundið, en þegar svefnleysi verður langvarandi fer það að taka af okkur toll og grafa sig inn í líkamlega og andlega heilsu okkar.
Svefnleysi er algengara en við höldum – um 10-30% fullorðinna eiga við það að stríða reglulega, og í sumum hópum fer hlutfallið upp fyrir 50% [1].
Svefnleysi og hjartabilun: Hvað segja nýjustu rannsóknir?
Í stórri samantekt rannsókna árið 2024, þar sem tekin voru saman gögn úr sjö sjálfstæðum rannsóknum með rúmlega 177.000 þátttakendum, kom í ljós að svefnleysi tengdist 26% aukinni hættu á að þróa með sér hjartabilun [2]. Sérstaklega var það vandi við að festa svefn sem jók áhættuna.
Önnur rannsókn, kynnt á ráðstefnu American College of Cardiology, sýndi að einstaklingar sem glímdu við svefnleysi voru í 69% meiri líkum á að fá hjartaáfall samanborið við þá sem náðu góðum og nærandi svefni. Athyglisvert var að áhættan var sérstaklega há hjá konum og hjá þeim sem einnig glímdu við sykursýki [3].
Einnig hafa rannsóknir leitt í ljós að stuttur svefn (undir sex klukkustundir á nóttu) eykur hættu á bæði hjartaáföllum og heilablóðfalli [4].
Þessi tengsl eru ekki aðeins tölfræði – þau endurspegla raunverulegan veruleika.
Hvers vegna tengist svefnleysi hjartasjúkdómum?
Líkaminn vinnur hörðum höndum að viðhalda jafnvægi meðan við sofum. Svefn stuðlar að lækkun blóðþrýstings, stjórnun bólguferla og jafnvægi í hormónakerfinu.
Þegar svefninn raskast:
- Blóðþrýstingur hækkar: Langvarandi svefnskortur getur leitt til þess að blóðþrýstingur helst hár yfir daginn, sem eykur verulega álag á hjartað.
- Bólgusvörun verður meiri: Svefnleysi ýtir undir viðvarandi bólgur í líkamanum, sem eru þekktur áhættuþáttur í þróun hjartasjúkdóma.
- Áhrif á sykurbúskap og þyngd: Svefnleysi getur haft áhrif á insúlínnæmi og aukið líkurnar á sykursýki og offitu, sem eru þættir sem veikja hjartað enn frekar.
- Ójafnvægi í taugaboðum: Skert svefnrútína truflar streituhormóna eins og kortisól, sem viðheldur ofvirkni í taugakerfinu.
Vítahringur svefnvandamála og hjartabilunar
Það sem gerir þessi tengsl svo varhugaverð er að svefnleysi getur bæði aukið líkur á hjartabilun og þegar hjartabilun hefur þróast, versnar svefninn enn frekar. Fólk með hjartabilun á oft erfitt með að liggja flatt, fær mæði um nætur og vaknar oft – og þannig verður vítahringurinn fullkomnaður.
Þess vegna telja sérfræðingar nauðsynlegt að meðhöndla svefnvandamál strax – bæði til að fyrirbyggja hjartasjúkdóma og til að bæta líðan þeirra sem þegar eru greindir.
Hvað getum við gert? – Góð svefnráð
- Viðhalda föstum svefntíma: Sami háttartími og vöknun alla daga, líka um helgar.
- Búa til svefnrútínu: Róandi rútína eins og heitt bað, lestur eða hugleiðsla fyrir svefn.
- Forðast skjái: Blátt ljós frá síma, tölvu og sjónvarpi truflar framleiðslu melatóníns, svefnhormónsins okkar.
- Minna koffín og áfengi: Draga úr neyslu frá síðdegis og fram á kvöld.
- Hreyfing – en ekki rétt fyrir svefn: Dagleg hreyfing styrkir svefn, en kraftmikil hreyfing rétt fyrir háttatíma getur haft öfug áhrif.
- Gera svefnherbergið að griðarstað: Þægilegt rúm, hæfilegt hitastig (16-19°C), lítil lýsing og lágmarks hávaði.
Ef svefnvandamál eru viðvarandi og hafa áhrif á daglegt líf, er skynsamlegt að leita aðstoðar hjá sálfræðingi eða lækni. Það er ekki veikleikamerki – heldur hugrekki að bregðast við áður en heilsan verður fyrir frekari skaða.
Niðurlag
Svefn er ein af grunnstoðum lífsins. Þegar svefninn gefur eftir, byrjar álagið á hjartað að aukast. Með því að hlúa að svefninum getum við bætt lífsgæði okkar, styrkt hjartað og byggt upp betri heilsu og lífsgæði til framtíðar.
Björn Ófeigs.
Heimildir:
- American Academy of Sleep Medicine. (2024). Insomnia: Symptoms, Causes, and Treatments. Sótt af: https://aasm.org
- Gao, J., o.fl. (2024). Association between Insomnia Symptoms and Risk of Heart Failure: A Meta-analysis. medRxiv. https://www.medrxiv.org/content/10.1101/2024.03.20.24304651v1
- Dean, Y.E., o.fl. (2023). Insomnia tied to greater risk of heart attack, especially in women. ScienceDaily. https://www.sciencedaily.com/releases/2023/02/230224135108.htm
- Centers for Disease Control and Prevention. (2022). Sleep and Chronic Disease. Sótt af: https://www.cdc.gov/sleep/about_sleep/chronic_disease.html