-Auglýsing-

Hver og hver og vill og verður?

armann_skuli.jpgGunnar Skúli Ármannsson skrifar í Morgunblaðið í dag um lokun bráðamóttöku Landspítalans við Hringbraut: “Að skilja að greiningu og meðferð á bráðri kransæðastíflu í einu bæjarfélagi er nýmæli.”

Vorið 1961, snemma morguns, opnaði hjúkrunarfræðingur dyrnar á 6 manna stofunni sem afi minn svaf í ásamt fimm öðrum. Hann hafði verið lagður inn á Landspítalann í Reykjavík með kransæðastíflu þremur dögum áður. 1961 fengu sjúklingar morfín við verkjum og húsaskjól, ekki mikið meira. Því var það eðlilegt í þá daga að sjúklingar með bráða kransæðastíflu svæfu eftirlitslausir á 6 manna stofum Landspítalans. Því var það einnig eðlilegt að einhver væri látinn að morgni sem hafði gengið til náða kvöldið áður lifandi.
Þennan maímorgun var afi látinn, eðlilegasti hlutur í heimi, 55 ára gamall. Meðalaldur þeirra sem eru endurlífgaðir í dag er 57 ár.

-Auglýsing-

1961 voru ekki til sérstakar hjartadeildir með þráðlausum búnaði sem fylgist með lífsmörkum sjúklinganna. Ekki voru til lyf sem bætt geta ástand sjúklinganna. Ekki til hjartaþræðing, ekki til kunnátta í endurlífgun, ekki til gjörgæsla. Ekki til hámenntað og þrautþjálfað starfsfólk. Því má fullyrða að hver einstaklingur sem lifði af kransæðastíflu árið 1961 hafi kostað Landspítalann margfalt minna en í dag. Því væri það, hreint rekstrarlega séð, mun hagstæðara að hverfa aftur til baka og taka upp þá einföldu meðferð sem var í boði 1961. Þrátt fyrir augljósan rekstrarhagnað vill enginn hverfa til gömlu tímanna. Munurinn á árangri þá og nú er svo augljós að ekki þarf að ræða málið.

Fyrirhugað er að loka bráðamóttöku Landspítalans við Hringbraut. Allir bráðasjúklingar fari fyrst inn í Fossvog. Ef þar kemur í ljós að þú sért með bráða kransæðastíflu þá verður þú fluttur niðrá Hringbraut. Þar er öll aðstaða til að sinna hjartasjúklingum og ekki er hægt að flytja þá vinnuaðstöðu þaðan. Í dag koma hjartasjúklingar beint á Hringbrautina. Þar með er komin auka-stoppistöð og auka-flutningur fyrir hjartasjúklingana ef þeir eiga að millilenda fyrst í Fossvoginum. Að skilja að greiningu og meðferð á bráðri kransæðastíflu í einu bæjarfélagi er nýmæli. Að greina kransæðastífluna í Fossvogi og meðhöndla sömu kransæðastíflu síðan á Hringbraut er ekki eingöngu nýmæli heldur afturhvarf til fortíðar.

- Auglýsing-

Það hafa ekki komið fram nein gögn sem benda til þess að þetta nýja fyrirkomulag sé jafngott eða betra fyrir sjúklingana. Aftur á móti sýna margar erlendar rannsóknir að þetta fyrirkomulag sem fyrirhugað er gefur af sér lakari árangur en það fyrirkomulag sem er núna til staðar. Við vitum í dag að meðferðin á Hringbraut er ein sú besta í heimi. Meginástæðan er sú að öll þjónusta er á einum stað. Lakari árangur hefur í för með sér að færri mannslífum er bjargað. Verri heilsu því margir munu koma seinna í hjartaþræðingu en nú og hver mínúta skiptir máli. Allt þetta leiðir á endanum til aukins kostnaðar. Hvati þessara breytinga er sparnaður í heilbrigðiskerfinu. Ég tel þessa sparnaðarráðstöfun mjög misráðna og hvet þá sem aðhyllast hana til að nema staðar og hugsa sig vel um.

Höfundur er læknir.

Morgunblaðið 03.04.2009

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-