-Auglýsing-

Handbók Hjartaverndar

hjartavernd2.jpgÍ tilefni af 40 ára afmæli Rannsóknarstöðvar Hjartaverndar er komin út Handbók Hjartaverndar þar sem teknar eru saman helstu niðurstöður rannsókna frá því að fyrstu þátttakendur komu í Reykjavíkurrannsókn Hjartaverndar árið 1967. Handbókin er aðgengileg á netinu á pdf formi og er ætluð almenningi, heilbrigðisstéttum og heilbrigðisyfirvöldum til að nýta í skipulagningu forvarna auk þess að gefa upplýsingar um tíðni og algengi og þróun helstu áhættuþátta hjarta- og æðasjúkdóma síðan árið 1967.

Alls hafa ríflega 35.000 Íslendingar lagt sitt á vogarskálarnar til að rit þetta gæti orðið að veruleika með því að taka þátt í hinum mörgu hóprannsóknum Hjartaverndar. Rannsóknum sem hafa gefið ómetanlegar upplýsingar um stöðu einstakra áhættuþátta hjarta- og æðasjúkdóma meðal Íslendinga.
Það er einlægur vilji og ósk Hjartaverndar að rit þetta megi nýtast sem flestum og að það beri fyrst og fremst vitni um þökk til handa íslensku þjóðinni fyrir einstakan hlýhug og velvilja í garð Hjartaverndar.

Hægt er að nálgast Handbókina með því að smella hér

www.hjarta.is 18.05.2008

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-