-Auglýsing-

Vilja norrænt bann við transfitusýrum

Norðurlandaráð vill að Norðurlöndin fylgi fordæmi Dana og banni matvæli sem innihalda meira en 2% af svonefndum transfitusýrum. Segja norrænir þingmenn þetta vera einfalda og auðvelda aðgerð til að koma í veg fyrir hjarta- og æðasjúkdóma á Norðurlöndum.

Tillaga þessa efnis var samþykkt á þingi Norðurlandaráðs í Helsinki í dag. Segir þar, að minnkun notkunar á transfitusýrum ætti að verða innan fimm ára og eru norrænu ríkisstjórnirnar hvattar til að beita þrýstingi innan ESB og í EES löndunum um að þau setji sömu reglur. Að auki er lagt til,  að matvæli sem ekki innihalda transfitusýrur verði merkt sérstaklega. 

„Það er mikilvægt að Norðurlöndin gangi á undan með góðu fordæmi á þessu sviði. Bann við transfitusýrum getur verið öðrum innblástur – meðal annars ESB og EES-svæðinu,” segir Henrik Dam Kristensen, fulltrúi í flokkahópi Jafnaðarmanna og neytendanefnd Norðurlandaráðs við vef Norðurlandaráðs.

Danir samþykktu lög um takmörkun á transfitusýrum við tvö prósent, árið 2004. Brot á lögunum getur haft í för með sér allt að tveggja ára fangelsi. Árangurinn er sá að í dag er innihald transfitusýra í matvælum í Danmörku mjög lágt miðað við hin Norðurlöndin. Lögin hafa meðal annars haft í för með sér að New York borg hefur samþykkt svipað bann í þeim 25.000 veitingahúsum sem eru í borginni.

www.mbl.is 29.10.2008

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-