-Auglýsing-

Varpar ljósi á hjartaáföll

Alþjóðleg teymi vísindamanna hafa uppgötvað tíu algengar erfðafræðilegar stökkbreytingar sem taldar eru stórauka líkur á hjartaáföllum með því að raska hjartslættinum, að því er greint var frá í tveimur nýbirtum rannsóknum í dag.

Niðurstöðurnar varpa ljósi á orsakir óreglulegs hjartslátts sem oftar en ekki er vísbending um alvarleg hjartavandamál og gæti þegar fram í sækir leitt við nýrra meðferðaúrræða, að því er fram kemur í vísindatímaritinu Nature Genetics.

Yfir 40 vísindamenn frá ýmsum löndum, undir forystu Arne Pfeufer við háskólann í Munchen, greindu erfðamengi hátt í 16.000 einstaklinga sem greinst höfðu með hjartsláttartruflanir.

Á sama tíma komust vísindamenn, undir forystu Christopher Newton-Cheh við Massachusetts General Hospital, að samskonar niðurstöðum eftir rannsókn á yfir 13.000 einstaklingum. 

www.mbl.is 22.03.2009

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-