-Auglýsing-

Súkkulaði, ást og faðmlög – uppskrift að hjartvænni helgi

Biti af súkkulaði, ást og faðmlög geta verið uppskrift að góðri og hjartavænni helgi.

Helgin er brostin á með menningarnótt og mikið um að vera. Stundum þarf samt ekki mikið til að gera helgina sérstaka.

Það getur verið súkkulaðibitinn sem bráðnar á tungunni, hláturinn yfir gömlum innanhússbrandara  og faðmlagið sem segir meira en þúsund orð. Þetta er ekki bara rómantík, heldur líka smá hjartaheilsumeðferð í dulargervi.

-Auglýsing-

Súkkulaði gleður

Dökkt súkkulaði, sérstaklega með yfir 70% kakó, er stútfullt af flavónóíðum og andoxunarefnum sem geta bætt æðastarfsemi og dregið úr bólgum. Þú þarft ekki heila súkkulaðiplötu, nokkrir bita duga til að gleðja bragðlaukana og gera hjartanu gott.

- Auglýsing-

Ástin í langtímasamböndum

Rannsóknir sýna að heilbrigð langtímasambönd hafa áhrif sem ná langt út fyrir andlega vellíðan. Þau tengjast lægri streitu, betri svefni og jafnvel minni líkum á hjarta og æðasjúkdómum. Þegar við eigum einhvern sem við getum treyst á í gleði og sorg  þá fær hjartað líka sitt skjól.

Krafturinn í faðmlögum

Faðmlög eru ekki bara hlý og notarleg kveðja. Þau örva losun oxýtósíns, hormóns sem stuðlar að öryggistilfinningu, lægri blóðþrýstingi og hægari hjartslætti. Það þarf ekki nema 20 sekúndna faðmlag til að hjartað taki kipp og það besta er að þessi meðferð er ókeypis og án aukaverkana.

Að lokum

Helgin er kjörinn tími til að næra hjartað bæði líkamlega og tilfinningalega. Hvort sem það er með súkkulaði, löngu faðmlagi eða hlýju augnaráði frá þeim sem þú elskar þá er þetta næring sem hjartað kann að meta.

- Auglýsing -

Gefðu hjartanu þínu það sem það þráir mest: ást, hlýju og smá sætu. ❤️

Björn Ófeigs.


Heimildir

Harvard T.H. Chan School of Public Health – Chocolate and Cardiovascular Health
https://www.hsph.harvard.edu/nutritionsource/food-features/chocolate/

American Heart Association – Love may be good for the heart
https://www.heart.org/en/news/2019/02/12/love-may-be-good-for-the-heart

Medical News Today – What happens during a hug?
https://www.medicalnewstoday.com/articles/what-happens-during-a-hug

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.
-Auglýsing-

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-