-Auglýsing-

Öryggi sjúklinga ógnað ?

Bæta þarf skipulag og stjórnun Sjúkrahússins á Akureyri að því er segir í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Þar kemur fram að starfsmenn eru óánægðir með ýmsa þætti í skipulagi og stjórnun sjúkrahússins. Segir í skýrslunni að á sumum deildum starfi svo fáir læknar að öryggi sjúklinga kunni að vera ógnað.
Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar er fjallað um skipulag, stefnu og stjórnun Sjúkrahússins á Akureyri (áður Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri). Fram kemur að samkvæmt viðhorfskönnun sem Ríkisendurskoðun gerði meðal starfsmanna sjúkrahússins ríkir óánægja með ýmsa þætti í skipulagi og stjórnun þess, m.a. með starfshætti framkvæmdastjórnar en í henni sitja fjórir æðstu stjórnendur stofnunarinnar.
Tekið skal fram að auk könnunarinnar byggði úttekt Ríkisendurskoðunar á viðtölum við fyrrverandi og núverandi starfsmenn og greiningu ýmissa gagna, samkvæmt upplýsingum frá Ríkisendurskoðun.

Vilja fækka einingum og styrkja þær
Starfsemi sjúkrahússins fer nú fram í 38 einingum og eru millistjórnendur um 50 en starfsmenn samtals um 600.
Að mati Ríkisendurskoðunar er mikilvægt að fækka starfseiningum með því að sameina þær. Stofna ætti nokkur kjarnasvið og setja framkvæmdastjóra yfir hvert þeirra sem sæti jafnframt í framkvæmdastjórn sjúkarhússins.
Með þessu móti telur Ríkisendurskoðun að unnt sé að styrkja framkvæmdastjórnina. Einnig sé mikilvægt að hún verði sýnilegri starfsmönnum en verið hefur og bregðist hratt við ábendingum og erindum frá þeim.
Ríkisendurskoðun telur að móta þurfi nýja stefnu og framtíðarsýn fyrir sjúkrahúsið með aðgerðaáætlun og árangursmælikvörðum. Þá sé brýnt að velferðarráðneytið ákveði framtíðarskipulag heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi, m.a. verkaskiptingu milli heilbrigðisstofnana á svæðinu.

Í skýrslunni kemur fram að þegar sé hafin vinna innan sjúkrahússins við að móta nýja stefnu. Fram kemur að skortur er á læknum á sjúkrahúsinu og að á sumum deildum starfi svo fáir læknar að öryggi sjúklinga kunni að vera ógnað. Vegna þessa hvetur Ríkisendurskoðun landlæknisembættið til að gera úttekt á öryggi sjúklinga á sjúkrahúsinu.

www.mbl.is 21.06.2011

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-