Við höfum flest séð dramatísku útgáfuna af hjartaáfalli í bíómyndum. Skyndilegur, lamandi brjóstverkur og allt gerist á sekúndum. Raunveruleikinn er oftar annar. Hjartað hvíslar miklu oftar en það hrópar.

Smávægileg einkenni sem við afskrifum sem meltingaróþægindi, streitu eða einfaldlega slæman dag geta stundum verið fyrstu skilaboðin í jafnvel nokkurra mánaða aðdraganda. Og einmitt þar liggur hættan, við hlustum ekki og kannski af því við þekkjum ekki merkin.
Óþægindi – ekki alltaf snarpur verkur
Brjóstverkir eru þekkt viðvörunarmerki. En þeir eru ekki alltaf dramatískir eða sársaukafullir. Stundum eru þetta bara:
- Þrýstingur eða þyngsli í brjósti
- Brennandi tilfinning sem minnir á brjóstsviða
- Óþægindi sem koma og fara
Margir hugsa: „Þetta er bara maginn.“ En ef einkenni eru ný, óvenjuleg eða koma við áreynslu, þá er ástæða til að taka þau alvarlega.
Mæðin sem við afskrifum fljótt
Aukin mæði við létta áreynslu er eitt af þeim einkennum sem fólk afskrifar oft. „Ég er bara í lélegu formi.“ Kannski. En ef þú finnur að þolið hefur breyst án skýrrar ástæðu þá er það merki sem vert er að skoða.
Samkvæmt Bresku hjartasamtökunum geta einkenni hjartasjúkdóma verið lúmsk og birtst sem mæði, óvenjuleg þreyta eða almenn vanlíðan og ekki endilega mikill verkur.
Þreytan sem er ekki „venjuleg“
Við höfum rætt þreytu áður. Þegar orkuleysi kemur án augljósrar skýringar og fylgir jafnvel á eftir mæði, svima eða brjóstóþægindum, þá er það ekki eitthvað sem á að sópa undir teppið.
Amerísku hjartasamtökin benda á að viðvörunarmerki hjartaáfalls geti verið óljós og þá sérstaklega hjá konum en þau geta innihaldið meðal annars ógleði, svima, þreytu og verk í baki eða kjálka.
Smávægileg einkenni sem geta skipt sköpum
Hér eru dæmi um „litlu“ merkin sem fólk hundsar:
- Óvenjuleg og köld svitamyndun
- Ógleði án augljósrar ástæðu
- Verkur í baki, öxl eða kjálka
- Óútskýrður kvíði eða tilfinning um að „eitthvað sé ekki í lagi“
- Nýtilkomin hjartsláttaróregla
Ekkert af þessu eitt og sér þýðir sjálfkrafa hjartasjúkdóm. En breytingar á eigin líkamsupplifun eiga alltaf skilið athygli.
Að lokum
Ég hef sjálfur lært að hjartað er sjaldnast hávært í byrjun. Það breytir um tón. Það sendir smá merki. Þú finnur að eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera en berð ekki kennsl á merkin.
Við eigum ekki að lifa í stöðugum ótta við einkenni. En við eigum heldur ekki að gera lítið úr þeim þegar líkaminn og upplifun af honum breytist.
Hjartað hvíslar oftast áður en það hrópar.
Það er því betra að læra að hlusta og bera kennsl á hvíslið áður en það hrópar.
Björn Ófeigs.
Heimildir
British Heart Foundation (BHF) – Signs and symptoms of heart attacks in women
https://www.bhf.org.uk/informationsupport/conditions/heart-attack/signs-and-symptoms-of-heart-attacks-in-women
British Heart Foundation (BHF) – Focus on heart attacks: causes, symptoms and effects
https://www.bhf.org.uk/informationsupport/heart-matters-magazine/medical/focus-on-heart-attacks
American Heart Association (AHA) – Warning Signs of a Heart Attack
https://www.heart.org/en/health-topics/heart-attack/warning-signs-of-a-heart-attack








































