-Auglýsing-

Lífsstílsbreytingar

LífsstílsbreytingarUndanfarið höfum við fjallað mikið um mataræði og matarkúra. Gallin við slíkar lausnir er að oft á tíðum vill árangurinn ekki verða varanlegur og við eigum oft á tíðum í erfiðleikum með að tileinka okkur varnalegar lífsstílsbreytingar.

Hér fyrir neðan er flott viðtal við konu sem þurfti að breyta lífi sínu en heilsufarsleg vandamál voru farin að gera vart við sig.

Það er frábært þegar fólk finnur sína leið og leggur það á sig sem þarf til að ná árangri. Lífsstílsbreyting er langtíma markmið og ef vel tekst til lengjum við líf okkar og lífsgæði okkar aukast..

Heilsulausnir breyttu lífi mínu 

Sigríður Hjördís Jörundsdóttir sagnfræðingur hafði lengi reynt að breyta lífsstíl sínum en illa gengið. Hún fór sífellt í sama farið aftur og þolið var skammlíft. Skyndilausnir dugðu skammt en í Heilsuborg fann hún loks námskeið sem hentaði henni. Nú er lífið léttara og hreyfingin er orðin hluti af daglegu lífi Sigríðar.

Fann loksins lausn

“Ég var alltaf að reyna að bæta mig. Fyrir nokkrum árum léttist ég til dæmis um rúmlega fjörutíu kíló á danska kúrnum en þau hafa verið að læðast smátt og smátt aftur að mér. Maður virðist alltaf detta í sama farið,” segir hún en bætir við að nú hafi hún loksins fundið lausn sem hentar henni. “Ég byrjaði í heilsurækt í Heilsuborg í janúar og þá ákvað ég að byrja að einbeita mér að reglulegri hreyfingu. Svo var það orðið að rútínu í sumar og þá ákvað ég að fara að fylgja stigakerfinu sem þau mæla með í Heilsuborg.”

- Auglýsing-

Stigakerfið sem Sigríður talar um byggist á hitaeiningaþörf hvers og eins. “Bak við hvert stig eru 50 hitaeiningar. Í líkamsgreiningu Heilsuborgar, sem kallast heilsumat, er reiknað út hversu margar hitaeiningar þú þarft til að léttast um hálft kíló á viku. Þetta er reiknað út frá ýmsum þáttum, til dæmis aldri og hæð,” útskýrir Sigríður. “Þá fer maður til hjúkrunarfræðings sem fer vel yfir stöðu mála og reiknar út hitaeiningaþörf manns.” Sigríður segir leiðbeiningar hjúkrunarfræðingsins hafa gert gæfumuninn, því það var ekki fyrr en hún fór að fylgja þeim í einu og öllu að hún fór að finna árangur erfiðisins.

Skuldbinding í ár

Sigríður segir að líf sitt hafi breyst til muna eftir að hún hóf æfingar hjá Heilsuborg. “Þetta er allt annað líf. Bara að fara úr því að sitja í sófanum alla daga yfir í að hreyfa sig að lágmarki þrisvar í viku munar heilmiklu. Maður verður miklu sprækari.”
Hún mætir þrisvar sinnum í viku í fasta tíma sem kallast Heilsulausnir. “Það er skuldbinding í heilt ár. Mér finnst það raunar vera eina vitið ef maður ætlar að taka þetta föstum tökum. Þessi sex eða átta vikna námskeið sem heita eitthvað eins og “í kjólinn fyrir jólin”, það eru einfaldlega skyndilausnir og maður fellur fljótlega í sama far.”

Sett upp sem skóli

Eftirfylgnina sem boðið er upp á í Heilsulausnum segir Sigríður vera afar hvetjandi. “Námskeiðið er í rauninni sett upp sem skóli. Það eru fjórar annir í heilu ári og í lok hverrar annar hittum við hjúkrunarfræðing sem fer yfir stöðu mála. Auk þess hittum við markþjálfa sem ræðir við okkur um sýn og áætlanir okkar. Það er persónulegur fundur þar sem hann skoðar stöðuna út frá lífi hvers og eins og hvað best sé að gera til þess að breyta henni.”
Námskeiðið er lokað og Sigríður segir að það sé mikil hvatning fólgin í því að vera hluti af slíkum hóp. “Þetta eru einstaklingar sem allir eru í svipuðum
sporum og við hittumst þrisvar í viku í klukkutíma í senn. Stuðningurinn frá hópnum er mikill og við erum farin að tala um að halda áfram að mæta þrisvar í viku eftir að námskeiðinu lýkur,” segir hún.

Daglegt líf

Heilsulausnir eru ekki hugsaðar fyrir ákveðinn aldur heldur fólk sem vill breyta lífsvenjum sínum. “Ef maður ætlar að gera þetta, þá er þetta verkefni sem maður verður að taka inn í sitt daglega líf,” segir Sigríður. “Líf mitt hefur breyst til muna. Sem dæmi finnst mér gaman að stússast í garðinum. Í fyrrasumar eyddi ég heilum degi í garðinum og um kvöldið gat ég varla gengið. Þetta var áður en ég byrjaði í Heilsuborg. Þegar ég endurtók svo leikinn núna um daginn fór ég út að ganga um kvöldið.”
Sigríður bætir við að hún hafi átt við heilsufarsvandamál að stríða á síðasta ári en það sé nú liðin tíð. Auk þess sé hún orkumeiri. “Síðasta haust fór ég yfirleitt heim eftir vinnu, lagðist upp í sófa og gat ekki meir. Það er undantekning ef það gerist í dag. Þetta er allt annað líf,” segir hún að lokum og brosir.

Viðtalið birtist í Fréttablaðinu þann 16. ágúst. síðastliðinn.

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-