-Auglýsing-

Leikmaður Larissa lést úr hjartaáfalli

Gríska knattspyrnufélagið Larissa, sem beið lægri hlut fyrir KR í Evrópudeild UEFA í sumar, tilkynnti fyrir stundu að leikmaður liðsins, Antonio de Nigris, hefði látist, væntanlega úr hjartaáfalli.

De Nigris var 31 árs gamall mexíkóskur landsliðsmaður sem kom til Larissa í ágúst, skömmu eftir leikina tvo við KR. Hann lék síðast með Ankaragucu í Tyrklandi og átti að baki 16 landsleiki fyrir Mexíkó.

De Nigris var fluttur á sjúkrahús í Larissa eldsnemma í morgun en var úrskurðaður látinn við komuna þangað. Hann var giftur og átti fimm ára gamla dóttur.

www.mbl.is 16.11.2009

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-