-Auglýsing-

Fitusýrur í matvælum – ný greining

Á árunum 2008 og 2009 voru gerðar hjá Matís ohf fitusýrugreiningar á 51 sýni af matvörum í þeim tilgangi að uppfæra gögn í ÍSGEM gagnagrunninum um efnainnihald matvæla. Verkefnið var unnið í samstarfi við Lýðheilsustöð og Matvælastofnun. Áhersla var lögð á að kanna magn trans-fitusýra í unnum matvælum og því voru tekin sýni af borðsmjörlíki, bökunarvörum, djúpsteikingarfeiti, mat frá skyndibitastöðum, ís, kexi, snakki og sælgæti.

Nýjar greiningar á fitusýrum í matvælum – hlutfall trans-fitusýra er mjög breytilegt

Í næringarráðleggingum er mælt með því að fólk borði eins lítið af trans-fitusýrum úr iðnaðarhráefni og hægt er. Einnig er mælt með því að takmarka neyslu á mettuðum fitusýrum. Með þessu móti er hægt að draga úr líkum á hjartasjúkdómum. Skortur hefur verið á upplýsingum um trans-fitusýrur í matvælum á íslenskum markaði en nú hefur að nokkru leyti verið bætt úr því.

Stór rannsókn var gerð á fitusýrum í öllum flokkum matvæla á íslenskum markaði árið 1995. Niðurstöður greininganna nú sýna að hlutfall trans-fitusýra fyrir nær öll matvælin er lægra en áður var.

- Auglýsing-

Í öllum flokkum matvara greindust a.m.k. sum sýnanna með litlu sem engu af trans-fitusýrum og er það mikil breyting frá því sem verið hefur. Til dæmis var nær ekkert af trans-fitusýrum í þeim tegundum af kexi sem teknar voru til skoðunar. Þetta sýnir að matvælaiðnaðurinn hefur fundið leiðir til að framleiða afurðir án trans-fitusýra. Það greindist þó talsvert af trans- fitusýrum í nokkrum sýnum af smjörlíki, bökunarvörum, ís og poppkorni. Ljóst er að framleiðendur geta endurbætt þessar vörur og losað þær við trans-fitusýrur. Niðurstöðurnar eru í samræmi við það að víða erlendis hefur náðst góður árangur við að draga úr trans-fitusýrum í matvælum.

Niðurstöður fitusýrugreininganna eru teknar saman fyrir fitusýruflokka í töflu hér neðar.

Helstu niðurstöður mælinganna voru:
a.     Hlutfall trans-fitusýra í þeim matvælum, sem greind voru, hafði almennt lækkað frá árinu 1995 en þá var gerð stór rannsókn á fitusýrum í íslenskum matvælum.

b.     Í sýnum af kexi var mjög lítið af trans-fitusýrum (undir 0,8% af fitusýrum). Í sýnum af sælgæti var lítið af trans-fitusýrum (undir 2% af fitusýrum). Í sýnum af mat frá skyndibitastöðum voru trans-fitusýrur undir 3,5% af fitusýrum.

- Auglýsing -

c.      Í sýnum af borðsmjörlíki, bökunarvörum, jurtaís, smjörlíki og snakki voru matvörur frá sumum framleiðendum með mikið af trans-fitusýrum en í sýnum frá öðrum framleiðendum var magn þessara fitusýra óverulegt. Þetta sýnir að vel er framkvæmanlegt að framleiða þessi matvæli án trans-fitusýra. 

d.     Merkingar á umbúðum stóðust ekki í öllum tilfellum fyrir þær vörur sem voru til skoðunar. Umbúðir fyrir eitt kexsýnið bentu til þess að trans-fitusýrur væru í kexinu þar sem tilgreind var jurtafeiti hert að hluta. Það reyndist hins vegar ekki rétt, kexið var laust við trans fitusýrur.

Í Danmörku er hámarksgildi fyrir transfitusýrur úr iðnaðarhráefni 2% af öllum fitusýrum. Hlutfallið er undir þessum mörkum fyrir 27 vörumerki og tegundir safnsýna af alls 42 eða 64% af öllum vörumerkjunum og tegundum safnsýna. 

Rétt er að benda á að þótt transfitusýrum sé útrýmt úr ákveðnum fæðutegundum þá er ennþá sá möguleiki fyrir hendi að varan innihaldi mettaða fitu og það ef til vill í miklu magni.

Innihaldslýsingar
Þótt magn trans-fitusýra sé almennt ekki merkt á umbúðir matvæla geta neytendur samt dregið vissar ályktanir af innihaldslýsingum. Ef jurtaolía er eina fituhráefnið má reikna með að matvælið innihaldi ekki trans-fitusýrur og tekist hafi að halda mettuðum fitusýrum í lágmarki. Sérstaklega ætti að huga að þessu í innihaldslýsingum fyrir brauð, kökur og kex. Hafa þarf í huga að kókosfeiti og pálmafeiti eru harðar feitmetistegundir úr jurtaríkinu og innihalda mikið af mettuðum fitusýrum. Ef fita hert að hluta (partially hydrogenated) kemur fyrir í innihaldslýsingu má gera ráð fyrir trans-fitusýrum. Hert fita er hins vegar ekki sönnun þess að trans-fitusýrur séu í vörunni en gera þarf ráð fyrir talsverðu af mettuðum fitusýrum.

Nánari upplýsingar um transfitusýrur

Þessi grein er fengin af vef Lýðheilsustöðvar og þar má finna fleiri upplýsingar um transfitu.

www.lydheilsustod.is

 

Auglýsing
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-