Vísindamenn á vegum Íslenskrar erfðagreiningar hafa komist að þeirri niðurstöðu, að breytileiki í erfðavísi, sem áður hefur verið sýnt fram á að tengist aukinni hættu á hjartaáfalli, tengist einnig myndun æðagúlpa í kviði og heila.
Grein um rannsóknirnar birtist á vef vísindatímaritsins Nature í gær. Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, segir í tilkynningu að niðurstöðurnar styrki ekki aðeins þær niðurstöður, sem birtust um þennan breytileika á síðasta ári varðandi aukna hættu á hjartaáföllum, heldur bendi til þess að breytileikinn hafi áhrif á það hvernig æðaveggirnir bregðast við öðrum áhættuþáttum.
Kári segir, að þessar niðurstöður verði m.a. teknar inn í rannsóknir, sem fyrirtækið gerir á erfðamengi einstaklinga.
Greinin í Nature
www.mbl.is 08.01.2008