-Auglýsing-

Áhersla á gæði og mataræðið í heild sinni í nýjum næringarráðleggingum

MatarhringurÁherslan í mataræði Norðurlandabúa er sett á mikilvægi þess að líta á mataræðið heildstætt og uppruni og gæði skipti miklu máli. 

Nýjar norrænar næringarráðleggingar (NNR 5) voru kynntar í Kaupmannahöfn 3. október 2013. Norrænu ráðleggingarnar mynda vísindalegan grunn fyrir ráðleggingar um mataræði og næringarefni hjá norrænu þjóðunum og eru einnig mikilvægar fyrir akademíska kennslu á sviði næringar. Ráðleggingarnar verða í fyrsta sinn aðgengilegar á netinu án endurgjalds.

-Auglýsing-

Áhersla á mataræðið í heild sinni

Áhersla er lögð á mataræðið í heild sinni í nýrri útgáfu norrænna næringarráðlegginga en jafnframt eru birtar ráðleggingar um neyslu vítamína og steinefna.Lögð er áhersla á mataræði sem er ákjósanlegt fyrir þroska og starfsemi líkamans og stuðlar að því að draga úr áhættu vissra næringartengdra sjúkdóma.

- Auglýsing-

Notast hefur verið við gagnreynt og gagnsætt ferli til þess að ákveða ráðleggingarnar. Í NNR 5 er nú meiri áhersla lögð á almenn gæði matarins og uppruna næringarefnanna sem við neytum.

Í NNR 5 er lögð áhersla á mataræði sem einkennist af mikilli neyslu grænmetis, ávaxta, berja og belgávaxta, reglubundinni neyslu fisks, jurtaolía, heilkornavara, fituskertra mjólkur- og kjötafurða en takmarkaðri neyslu á rauðu kjöti og unnum kjötvörum, sykri, salti og áfengi.

Lögð er áhersla á gæði fitu og kolvetna í NNR 5 og mælt með neyslu á einómettuðum fitusýrum (MUFA), fjölómettuðum fitusýrum (PUFA) og trefjaríkri fæðu en hvatt til þess að takmarka neyslu á mettaðri fitu, transfitusýrum og viðbættum sykri.

- Auglýsing -

Ráðleggingar um hreyfingu

Hvað hreyfingu varðar er mælt með að fullorðnir stundi  ≥150 mínútur af miðlungserfiðri hreyfingu eða ≥75 mínútur af erfiðri hreyfingu yfir vikuna eða samsvarandi blöndu af bæði miðlungserfiðri og erfiðri hreyfingu. Börn og unglingar ættu að hreyfa sig daglega í minnst 60 mínútur samtals og á hreyfingin að vera bæði miðlungserfið og erfið. Einnig er ráðlagt að takmarka kyrrsetu á öllum æviskeiðum.

Vinnan við ráðleggingarnar

Norrænu ráðleggingarnar voru unnar af vinnuhópi á vegum Norrænu embættismanna-nefndarinnar um matvæli (Nordic Committee of Senior Officials for Food Issues, EK-FJLS) sem tilnefnt var í árið 2009. Yfir hundrað sérfræðingar hafa tekið þátt í endurskoðuninni sem byggir á gagnreyndum aðferðum við að meta sambandið milli neysluvenja og áhrifa á heilsu.

Næstu skref á Íslandi

Norrænu næringarráðleggingarnar verða kynntar á Matvæladegi MNÍ 2013 sem haldinn verður á Grand Hótel Reykjavík miðvikudaginn 16. október. Yfirskrift dagsins er: Ráðleggingar um mataræði og næringarefni – nýjar áherslur. Íslenskar ráðleggingar um mataræði og næringarefni byggja að stórum hluta á þeim norrænu og verða þær endurskoðaðar í kjölfarið.

Nánari upplýsingar er að finna á www.norden.org/nnr

Hólmfríður Þorgeirsdóttir
verkefnisstjóri næringar

Af vef Landlæknis

 

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.
-Auglýsing-

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-