Gríska knattspyrnufélagið Larissa, sem beið lægri hlut fyrir KR í Evrópudeild UEFA í sumar, tilkynnti fyrir stundu að leikmaður liðsins, Antonio de Nigris, hefði látist, væntanlega úr hjartaáfalli.
De Nigris var 31 árs gamall mexíkóskur landsliðsmaður sem kom til Larissa í ágúst, skömmu eftir leikina tvo við KR. Hann lék síðast með Ankaragucu í Tyrklandi og átti að baki 16 landsleiki fyrir Mexíkó.
-Auglýsing-
De Nigris var fluttur á sjúkrahús í Larissa eldsnemma í morgun en var úrskurðaður látinn við komuna þangað. Hann var giftur og átti fimm ára gamla dóttur.
www.mbl.is 16.11.2009
-Auglýsing-