Í tilefni af því að Kvennahlaupið var tileinkað hjartavernd kvenna runnu 50 krónur af andvirði hvers selds Kellogg’s-pakka til Hjartaverndar á tímabilinu 2.–16. júní.
Þegar salan var gerð upp komu í hlut Hjartaverndar 700 þúsund krónur en alls seldust 14 þúsund pakkar á tímabilinu.
Hjartavernd notaði féð til að endurnýja tækjakost á rannsóknarstofu sinni. Keypt var nýtt PCR-tæki sem kemur að góðum notum við erfðafræðirannsóknir Hjartaverndar.
Á dögunum kynnti Vilmundur Guðnason forstöðulæknir Hjartaverndar hinn nýja tækjakost en viðstaddir auk Vilmundar voru Brynja Georgsdóttir, vörumerkjastjóri Nóa Síríus, fyrir hönd Kellogg’s á Íslandi, Jóna Hildur Bjarnadóttir, sviðsstjóri almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, Kristín Bjarnadóttir, lífeindafræðingur rannsóknarstofunnar, og Sigríður Harpa Hafsteinsdóttir sameindalíffræðingur.
Kvennahlaup ÍSÍ fer næst fram hinn 7. júní í samstarfi við Lýðheilsustöð og er þema ársins „Heilbrigt hugarfar, hraustar konur“.
Morgunblaðið 15.05.2008