-Auglýsing-

Langtíma hlutafasta virðist auka líkur á hjarta og æðasjúkdómum

Mataræði og matarvenjur ráða miklu um heilsufar okkar. Nú virðast langtímahárif hlutaföstu hafa neikvæð heilsufarsleg áhrif.

Á mbl.is er sagt frá rannsókn sem skilaði rannsakendum niðurstöðum sem þeir áttu ekki von á. Það skal þó sagt í upphafi að aðferðin sem notuð var er í meira lagi vafassöm. Það kom semsagt í ljós að með því að borða aðeins í átta klukku­stund­ir á dag en fasta síðan það sem eft­ir er dags­ins gæti tengst auk­inni hættu á dauðsföll­um af völd­um hjarta­áfalla og heila­blóðfalla, að sögn vís­inda­manna.

Almennt hafa vís­inda­menn tengt föst­urn­ar við betri niður­stöður til skamms tíma þegar kem­ur að blóðþrýst­ingi, blóðsykri og kó­lester­óli en samkvæmt rannókninni gegnir öðru máli um langtíma áhrif þess.

Tak­markaðar upp­lýs­ing­ar um mat­ar­venj­ur

Niður­stöður til langs tíma hafa aft­ur á móti núna verið kannaðar í einni af fyrstu rann­sókn­um þess efn­is, að því er The Times og fleiri miðlar greina frá.

Eft­ir að hafa fylgst með um 20 þúsund full­orðnum ein­stak­ling­um í Banda­ríkj­un­um kom í ljós að þeir sem sögðust borða inn­an átta klukku­stunda glugga voru næst­um því tvisvar sinn­um lík­legri til að deyja af völd­um hjarta­áfalla eða heila­blóðfalla, sam­an­borið við þá sem sögðust dreifa máltíðum sín­um og milli­mál­um á 12 til 16 klukku­stund­ir.

Vís­inda­menn­irn­ir sem gerðu rann­sókn­ina lögðu áherslu á að taka skuli niður­stöðunum með fyr­ir­vara, þar sem rann­sókn sem þessi geti ekki sannað or­sök og af­leiðingu. Einnig sögðust þeir hafa tak­markaðar upp­lýs­ing­ar um mat­ar­venj­ur þátt­tak­end­anna.

Niðurstöðurnar komu á óvart

Victor Wenze Zhong aðalhöfundur rannsóknarinnar sagði niðurstöðurnar hafi komið mjög á óvart. “Við höfðum reiknað með því að langtímaáhrif þess að borða innan átta tíma glugga á sólahring myndi leiða til minnkandi áhættu á hjarta og æðasjúkdómum og dauða af öðrum orsökum.”

- Auglýsing-

“Við urðum því mjög undrandi þegar í ljós kom að þeir sem stunduðu hlutaföstu og neyttu einungis matar innan 8 tíma glugga en föstuðu 16 tíma til lengri tíma voru í meiri hættu að deyja úr hjarta og æðasjúkdómum. Þó þessi tegund af matarvenjum hafi verið vinsæl vegna jákvæðra skammtímaáhrifa sýnir rannsóknin að borðið saman við hefðbundnar matarvenjur þar sem neysla matar dreifist yfir 12-16 tíma á sólahring virðist hlutafasta til lengri tíma ekki tengjast lengra æviskeiði.

Frekari rannsókna þörf

Það er mikilvægt fyrir sjúklinga og þá helst þá sem eru nú þegar með hjarta og æðasjúkdóm eða krabbamein að vera meðvitaðir um tenginguna á milli hlutaföstu til lengri tíma og aukinni áhættu á dauða af völdum hjartasjúkdóma.

Niðurstöður rannsóknarinnar hvetja til meiri varkárni við val á mataræði/matarvenjum og mikilvægi þess að vera með einstaklingmiðaðar leiðbeiningar þar sem tekið er mið af heilsufari einstaklingsins og nýjustu vísindalegu niðurstaðna.”

Aðstandendur rannóknarinnar viðurkenna að rannsóknin hafi takmarkanir vegna þess hún er byggð á því að þáttakendur skiluðu sjálfir upplýsingum um mataræði sitt og þá jafnvel eftir minni og geti það gefið skakka mynd af raunverulegu munstri á matarvenjum viðkomandi.

Rannsóknin er áhugaverð en annmarkar á framkvæmd hennar eru svo miklir að ber að taka niðurstöður hennar með mikilli varúð. Í öllu falli er ljóst að frekari rannsókna er þörf.

Hægt er að lesa nánar um rannsóknina hér

Björn Ófeigs.

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-