-Auglýsing-

Flökkusagan um röng viðbrögð við hjartaáfalli sem gengur á Facebook

Hér er athyglisverð frétt sem birtist í DV þar sem kveðin er niður flökkusaga sem gengið hefur á Facebook um nokkurt skeið.
„Það þarf nú kannski mikið til að maður fari að gera athugasemdir við flökkusögur sem eru á Facebook,“ segir Ingibjörg Guðmundsdóttir, yfirlæknir hjartaþræðinga á Landspítalanum.

Ingibjörg var í viðtali hjá Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í vikunni þar sem hún var spurð út í flökkusögu sem gengur um á Facebook þar sem farið er yfir viðbrögð við hjartaáfall. Óhætt er að segja að ráðin sem gefin eru í færslunni séu óvenjuleg og er eitt þeirra til dæmis að draga djúpt inn andann og hósta ítrekað og kröftuglega.

Ingibjörg segist efast um að þetta geri nokkurt gagn í flestum tilvikum. „Ekki nema að fólk veit þá að það er með lífsmarki. Það þarf nú kannski mikið til að maður fari að gera athugasemdir við flökkusögur sem eru á Facebook en stundum sér maður sig knúinn til að gera athugasemdir vegna þess að fólk kannski veit ekki fyrr en á reynir hvernig það bregst við þegar það veikist alvarlega og þess vegna er gott að almenningur viti hvað eru rétt viðbrögð ef það fær einkenni hjartaáfalls.“

Þetta eru einkennin

Ingibjörg segir að einkenni hjartaáfalls geti verið mismunandi en gjarnan sé um að ræða einhvern þyngslaverk fyrir brjósti sem getur leitt út í handleggi, aftur í bak eða upp í kjálka.

„Stundum er almenn vanlíðan með þessu, fólk getur kaldsvitnað og orðið óglatt,“ sagði hún og tók fram að það væri ekki eitthvað eitt ákveðið mynstur þegar kemur að einkennum hjartaáfalls. „En gjarnan eru þetta einhvers konar þyngsli fyrir brjósti með öðrum einkennum með.“

Ingibjörg var svo spurð hvernig best er að bregðast við þegar þessi einkenni gera vart við sig.

„Réttu viðbrögðin eru að kalla eftir hjálp,“ sagði hún og tók fram að stundum finnist fólki vandræðalegt að gera það. Það hugsi jafnvel hvað nágranninn myndi segja ef hann sæi sjúkrabíl fyrir utan húsið. Ingibjörg segir mikilvægt að láta vita, til dæmis maka, og ef viðkomandi er einn að hringja í Neyðarlínuna, 112, og fá ráð.

- Auglýsing-

„Þar er náttúrulega afskaplega vel þjálfað fólk og ef það telur að þetta sé ekki alvarlegt þá vísar það fólki annað.“

Skiptir máli að bregðast rétt við

Aðspurð hvort fólki gæti gert eitthvað til að tryggja sig betur, ef það er einsamalt og langt í hjálp, sagði Ingibjörg:

„Þá er kannski hægt að láta einhvern vita sem er í grenndinni, annars gefur Neyðarlínan akkúrat þessi ráð. Oft er það þannig að einkennin eru ekki svona alvarleg og þau geta verið vægari. Þá geta þeir sem eru viðbragðsaðilar sent lækni á staðinn á undan ef það er langt í sjúkrabíl eða einhvern annan viðbragðsaðila og það fólk getur veitt góða aðstoð.“

Ingibjörg sagði miklu máli skipta að bregðast rétt við, sérstaklega ef um er að ræða bráða lokun á stórri kransæð. Þá sé um lífshættulegt ástand að ræða. „Þeim mun fyrr sem æðin er opnuð aftur þeim mun betur jafnar hjartað sig almennt.“

Ákvað að stíga inn í

Aðspurð hvort flökkusögur eins og þessi sem fjallað er um – og sést hér að ofan – séu slæmar fyrir heilbrigðisstarfsfólk og fólk almennt sagði Ingibjörg:

„Já, af því ég held að það sé líka þannig að það er eitthvað í mannlegu eðli, ef maður veikist, þá er það eitthvað í fólki að vilja að draga sig í hlé og leggjast einhvers staðar fyrir í lokuðu herbergi. Maður sér þetta líka hjá dýrum,“ sagði Ingibjörg og tók fram að það væri algengt að fólk sem upplifir einkenni hjartaáfalls vilji ekki hringja eftir aðstoð. Það sé jafnvel maki viðkomandi sem tekur frumkvæðið.

Ingibjörg segist sjálf ekki vera mjög virk á samfélagsmiðlum og því verði hún ekki vör við margar flökkusögur eins og þessa. Nokkrir aðilar hafi þó verið búnir að hafa samband og benda henni á þetta og spyrja hvort þetta væri rétt. „Þess vegna fannst mér rétt að stíga þarna inn í,“ sagði hún.

Viðtalið við Ingibjörgu.

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-