Ný nefnd heilbrigðisráðherra sem hafa mun umsjón með fasteignum spítalanna mun eiga sinn fyrsta fund á föstudag. Inga Jóna Þórðardóttir, formaður nefndarinnar, segir að vinna við nýjan Landspítala muni byggja á grunni framkvæmdanefndar sem Alfreð Þorsteinsson stýrði.
Hún segir að á fundi nefndarinnar næstkomandi föstudag verði farið yfir stöðu mála. Ekki sé fyrirsjáanlegt að töf verði á uppbyggingu nýs Landspítala við Hringbraut þrátt fyrir breytingar í fyrirkomulagi nefnda. Málin séu í góðum farvegi, búið að semja við danska ráðgjafa sem vinni nú að gerð frumáætlunar.
-Auglýsing-
fréttablaðið 06.11.2007
-Auglýsing-