-Auglýsing-

Miðjarðarhafsmataræðið og hvernig er það í framkvæmd?

Eins og nafnið gefur til kynna er þetta mataræði upprunnið frá löndum við Miðjarðarhafið og er aðallega kennt við Suður – Ítalíu og Grikkland.

Ef ég væri spurður að því hvort það væri eitthvert mataræði sem unnt væri að tileinka sér, til þess að draga úr hættunni á hjarta- og æðasjúkdómum, myndi ég segja að það væri Miðjarðarhafsmataræðið (Dieta Mediterranea).

Eins og nafnið gefur til kynna er þetta mataræði upprunnið frá löndum við Miðjarðarhafið og er aðallega kennt við Suður – Ítalíu og Grikkland. Fjöldi rannsókna hefur sýnt fram á hollustu Miðjarðarhafsmataræðisins og jákvæð áhrif þess á áhættuþætti hjarta-og æðasjúkdóma. Rannsóknir hafa einnig sýnt að Miðjarðarhafsmataræði dregur úr hættunni á sykursýki. Samantekt á rannsóknum, sem birt var 2008 í British Medical Journal, sýndi að Miðjarðarhafsmataræði dregur úr líkum á að deyja úr krabbameini og hjartasjúkdómum, auk þess sem mataræðið virtist draga úr líkum á að fá Parkinson sjúkdóm og Alzheimer sjúkdóm.

Meginuppsitaða Miðjarðarhafsmataræðisins eru ávextir, grænmeti, heilkorn, brauð, pasta, baunir, fræ, ólífur og ólífuolía. Trefjaneysla er því mikil. Einnig er lögð áhersla á neyslu fisks og sjávarfangs af ýmsu tagi, jógúrts, osta og hóflega eggjanesyslu. Hvað kjöt varðar er aðallega mælt með alífuglakjöti, neysla á rauðu kjöti er lítil og lögð áhersla á að það sé magurt. Mælt er með sætindum í hófi.

Á fimmta og sjötta áratug síðustu aldar leiddu faraldsfræðilegar rannsóknir í ljós að tíðni hjarta-og æðasjúkdóma var mjög lág í mörgum löndum við Miðjarðarhafið. Einnig var tíðni krabbameina lág og meðalævilengd há. Bandaríski næringarfræðingurinn Ancel Keys, sem þekktur er fyrir svokallaða sjö-landa rannsókn (Seven Countries Study), hreifst mjög af þessu mataræði og dvaldi hann sjálfur langdvölum á Ítalíu. Keys er þekktastur fyrir kenningar sínar um tengsl kólesteróls við hjarta-og æðasjúkdóma. Taldi hann að neysla mettaðrar fitu og kólesteróls yki líkur á hjartasjúkdómum. Kenningar hans einkenna enn í dag almennar ráðleggingar um mataræði og hjarta- og æðasjúkdóma.

Fjöldi rannsókna hefur sýnt fram á jákvæð áhrif Miðjarðarhafsmataræðisins á lífslíkur og tilurð hjarta-og æðsjúkdóma. Yfirleitt er ekki litið á Miðjarðarhafsmataræðið sem megrunarfæði eða mataræði sem ber að tileinka sér í baráttunni við offitu. Þrátt fyrir það hafa rannsóknir sýnt að Miðjarðarhafsmataræðið getur verið jafngott og lágkolvetnakolvetnamataræði fyrir þá sem þurfa að léttast.

Hvað felst í Miðjarðarhafsmataræðinu?

Megináhersla er lögð á hráefni úr jurtaríkinu. Ávextir og grænmeti eru aðaluppistaða Miðjarðarhafsmataræðisins. Helst á að borða ávexti og grænmeti sjö til tíu sinnum á dag. Einnig er mælt með daglegri neyslu á heilkornaafurðum (heilkorna-brauð, heilkornapasta), baunum af ýmsu tagi, fræjum, hnetum og ólífum. Að jafnaði koma um 60 prósent hitaeininganna úr jurtaríkinu. Fisk og sjávarfang á að borða u.þ.b. þrisvar í viku. Alífuglakjöt má borða einu sinni til tvisvar í viku en magurt rautt kjöt helst ekki nema einu sinni til tvisvar í mánuði. Lambakjöt er algengast. Jurtakrydd af ýmsu tagi, eins og hvítlaukur, lime, basilika og fennel er notað við matargerð, frekar en salt. Hráefni Miðjarðarhafsmataræðisins er þó fremur saltríkt.

- Auglýsing-

Brauðneysla er talsverð, en álegg eru notuð í mun minna mæli en á Vesturlöndum. Brauðið er annað hvort borðað þurrt eða bleytt í olíu.

Miðjarðarhafsmataræðið er tiltölulega fituríkt. Fita er yfileitt 25 – 35 prósent af heildarorkunni, mettuð fita þó ekki nema 7-8 prósent. Stærsti hluti fitunnar kemur úr sjávarafurðum, ólífuolíu, hnetum og fræjum. Ólífuolía er notuð alfarið í stað smjörs og smjörlíkis. Sjávarfang inniheldur mikið af omega-3 fitusýrum og ólífuolían er rík af einómettuðum fitusýrum. Báðar þessar gerðir fitusýra eru taldar hollar og hafa jákvæð áhrif á blóðfitur.

Hófleg eggjaneysla tilheyrir, en ekki er mælt með að borðuð séu fleiri en fjögur til sjö egg á viku. Mjölkurvörur eru fitusnauðar, aðallega fitusnauð jógurt og fitulitlir ostar.

Víndrykkja tilheyrir Miðjarðarhafsmataræðinu. Þó er um að ræða mjög hóflega drykkju, ekki meira en eitt vínglas á dag fyrir konur og tvö fyrir karla.

Svona gæti dagurinn litið út á Miðjarðarhafsmataræðinu:

Morgunverður :  

  • Yfirleitt er borðað heilkornabrauð, ávextir, stundum grænmeti, jógúrt, morgunkorn úr heilkorni, fitusnauð mjólk.

Hádegisverður:

  • Meginuppistaðan er fjölbreytt úrval grænmetis, salat og gjarnan feta ostur. Brauð, baunir, sjávarréttasúpur, grænmetissúpur, fiskur, skelfiskur. Jurtakrydd af ýmsu tagi er notað í ríkum mæli.

Kvöldverður:

  • Sjávarfang er oftast meginuppistaðan, stundum kjúklingur eða annað alífuglakjöt. Heilkornapasta og hýðishrísgrjón. Grænmeti. Ólífuolía er notuð við matargerð.

Eftirréttir:

  • Ávextir eru meginuppistaðan. Einnig má nota heilkorn af ýmsu tagi, hunang og gríska jógúrt.

Snakk:

  • Mælt er með heilkornum, hnetum og þurrkuðum ávöxtum.

Almennt er hreyfing og líkamsrækt talinn vera mikilvægur hluti af lífsstíl Miðjarðarhafsbúa. Mælt er með daglegri hreyfingu. Máltíðir eru mikilvægur þáttur í lífsstíl fólks við Miðjarðarhafið. Andrúmsloftið er afslappað og máltíðirnar eru nýttar til samneytis við vini og fjölskyldu, eitthvað sem margir Íslendingar gætu tileinkað sér í ríkara mæli.

Pistillinn er úr smiðju Axels F. Sigurðssonar hjartalæknis á Hjartamiðstöðinni

Tengt efni : Miðhjarðarhafsmataræðið dregur úr hjarta og heilaáföllum  og Leyndardómar Miðjarðarhafsmataræðisins

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Axel F. Sigurðsson
Axel F. Sigurðsson
Axel er sérfræðingur í lyflækningum og hjartalækningum. Embættspróf frá Læknadeild Háskóla Íslands 1984. Sérfræðinám við Sahlgrenska/Östra háskólasjúkrahúsið í Gautaborg 1988-1995 og við Royal Jubilee Hospital í Victoria BC í Kanada 1995-1996. Doktorspróf frá Gautaborgarháskóla 1993. Sérfræðingur í hjartalækningum við Landspítala Háskólasjúkrahús frá 1996 með megináherslu á kransæðasjúkdóma, kransæðaþræðingar, kransæðavikkanir og hjartabilun. Axel hefur starfað sem hjartalæknir á Hjartamiðstöðinni Holtasmára 1. frá 2008.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-