-Auglýsing-

18,7% veitt lífsbjargandi skyndihjálp

Logo 112dagurinnÞeir sem hafa farið á námskeið í skyndihjálp treysta sér miklu fremur en aðrir til að veita bráðveikum eða alvarlega slösuðum skyndihjálp. Það á sérstaklega við um þá sem hafa farið á námskeið á síðustu þremur árum. Þetta kemur skýrt fram í niðurstöðum könnunar sem Capacent Gallup gerði fyrir Neyðarlínuna í tilefni af 112-deginum. Í hópi þeirra sem farið hafa á námskeið á síðustu þremur árum segjast 85 prósent treysta sér til að aðstoða en aðeins þriðjungur þeirra sem aldrei hafa farið á námskeið. Könnunin sýnir einnig að nær fimmtungur hefur lent í að þurfa að veita lífsbjargandi skyndihjálp. Líkurnar á því að þurfa að beita skyndihjálp við erfiðar aðstæður eru því miklar.

112-dagurinn er haldinn um allt land í dag, 11. febrúar. Hann er einnig haldinn víða um Evrópu en 112 er samræmt neyðarnúmer í löndum Evrópusambandsins. Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið og þá margvíslegu aðstoð sem almenningur hefur aðgang að í gegnum það. Að þessu sinni er áhersla lögð á að hvetja fólk til að læra skyndihjálp og hika ekki við að veita fyrstu aðstoð á vettvangi slysa og veikinda. Reynslan sýnir að margir hika við að koma veikum og slösuðum til aðstoðar, meðal annars vegna skorts á þekkingu í skyndihjálp eins og könnun Capacent Gallup bendir til.

Könnunin leiðir meðal annars eftirfarandi í ljós:

Langflestir, eða 75 prósent, segjast treysta sér til að veita bráðveikum eða alvarlega slösuðum skyndihjálp. Heldur fleiri (70 prósent) segjast treysta sér til að hjálpa fjölskyldumeðlimum, vinum, kunningja eða vinnufélaga en ókunnugum (61,6 prósent).
Karlar og fólk á aldrinum 35-44 ára segjast fremur en aðrir treysta sér til að veita lífsbjargandi skyndihjálp.

82,7 prósent hafa farið á námskeið í skyndihjálp, þar af tæplega 31 prósent á síðustu þremur árum. Tæplega fimmtungur hefur aldrei sótt námskeið í skyndihjálp.

Rúmlega 70 prósent hafa þurft að veita öðrum almenna/einfalda skyndihjálp.

- Auglýsing-

18,7 prósent hafa þurft að veita bráðveikum eða einstaklingi með alvarlega áverka lífsbjargandi skyndihjálp. Í 8,4 prósent tilvika var um að ræða ókunnugan einstakling. Þeir sem hafa sótt námskeið í skyndihjálp eru miklu líklegri til að hafa veitt lífsbjargandi skyndihjálp.

Um var að ræða netkönnun sem gerð var 17.-28. janúar síðastliðinn. Notað var 1.450 manna úrtak 18 ára og eldri af öllu landinu. Svarhlutfall var 57,3 prósent.

www.112.is  11.2.2012

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-