-Auglýsing-

Þynnka getur haft áhrif á heilsu þína

Fá sér í glasEigum við að skála fyrir heilsu þinni? Ekki mikið: Óhófleg áfengisdrykkja og timburmenn geta aukið hættuna á hjartasjúkdómum og heilablóðfalli, samkvæmt nýrri finnskri rannsókn.

Í rannsókninni, sem stóð yfir í 15 ár var úrtakið yfir 2600 miðaldra karlar. Skoðaðir voru þeir sem drukku 6 drykki eða meira endrum og sinnum og komust vísindamenn að því að timburmenn aðeins einu sinni á ári tengist aukinni hættu á heilablóðfalli.

Timburmennirnir juku áhættuna á heilaáföllum burtséð frá því hversu mikið magn áfengis var drukkið, en framgangur æðakölkunar varð meiri hjá þeim sem drukku 6 drykki eða meira í eitt skipti.

Karlar með háan blóðþrýsting og í ofþyngd meðan á neyslunni stóð, juku enn meira á áhættuna á heilablóðfalli.

Neysla mikils magns af áfengi oftar en tvisvar í viku hækkaði dánartíðni af völdum heilaáfalls.

Einstaka timburmenn skipta sennilega ekki miklu máli til lengri tíma litið. En mikið og langvarandi óhóf getur stuðlað að hærra kólesteróli og háþrýstingi, sem setur þig í aukna hættu á kransæðasjúkdómum og heilablóðfalli, segir höfundur rannsóknarinnar Sanna Rantakömi.

- Auglýsing-

Einn til þrír drykkir á gleðistund ættu að vera öruggir. Ef þú ert með undirliggjandi heilsufarsleg vandmál sem geta haft áhrif hjarta og æðakerfið eða ef það eru langvinnir sjúkdómar í fjölskyldu þinni, svo sem háþrýstingur, sykursýki 2 eða hjartasjúkdómar, ættir þú að íhuga það að minnka skammtinn þar sem þú ert þá þegar í meiri áhættu.

Þar sannast máltækið að allt sé best í hófi.

Greinin er þýdd og endursögð úr greinum af Mens Health News og  Science daily.

P.S. Ekki gleyma að læka við okkur á Facebook

 

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-