-Auglýsing-

Sjúkir og barnshafandi í forgang

Barnshafandi konur, heilbrigðisstarfsmenn og fólk með undirliggjandi heilsuvandamál eiga að verða fyrst í röðinni til að fá bólusetningu gegn svínaflensu (H1N1) samkvæmt niðurstöðum sérfræðinga Evrópusambandsins. Börn voru ekki tiltekin sem forgangshópur eins og áður hafði verið gert.

Í yfirlýsingu frá sérfræðingum á vegum ESB sagði að þeir sem sýndu alvarleg einkenni öndunarsjúkdóma, hjartasjúkdóma eða ofnæmissjúkdóma ættu að fara fremst í röðina. Niðurstaðan er leiðbeinandi fyrir ESB ríkin.

Að sögn sérfræðinganna er mikilvægt að hvert ESB ríki komi sér upp áætlun vegna bólusetninga við svínaflensunni. Sérfræðingar sambandsins hafa þegar sagt það óþarfa að loka skólum eða fresta opnun þeirra í því skyni að berjast við svínaflensuna.

www.mbl.is 24.08.2009

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-