Þorbjörn Jónsson, formaður læknaráðs Landspítalans, gagnrýndi stjórnskipulag á spítalanum á fundi læknaráðs Landspítalans um helgina.
Stjórnkerfið segir hann of stórt og skil milli stjórnunarhlutverks yfirlækna og deildarstjóra ekki nægilega skörp. Miklar breytingar séu líklega í farvatninu á spítalanum auk þeirra sem á undan eru gengnar og vilji læknar og læknaráð vera í fararbroddi í þeim umræðum.
-Auglýsing-
Þorbjörn segir umræðurnar hafa verið gagnrýndar á þeim forsendum að aðallega hefði verið rætt um stjórnunarhlutverk lækna. “Þetta var læknaráðsfundur hugsaður fyrir lækna þótt aðrir hafi verið velkomnir.”
– kdk
Fréttablaðið 21.04.2008
-Auglýsing-