-Auglýsing-

Nýtt háskólaskúkrahús: Kostnaðaráætlun hleypur á 76-97 milljörðum króna

nyji_spitalinn.jpgVerkefnisstjóri byggingar nýs háskólasjúkrahúss segir í yfirlýsingu að heildarkostnaður við verkefnið nemi 70 milljörðum á verðlagi febrúar 2008,  eða sem svarar til 76,5 milljörðum króna á verðlagi 1. maí sl.

Rúmlega ársgömul kostnaðaráætlun, sem Viðskiptablaðið fékk nýlega, metur kostnaðinn hins vegar 97 milljarða króna á núvirði.

Viðskiptablaðið, sem hefur fjallað um kostnað við framkvæmdina undanfarna daga, hefur eftir Ingólfi Þórissyni verkefnisstjóra á vef sínum í dag að blaðið  hafi fengið dýrari kostnaðaráætlunina “fyrir mistök.”

Í umfjöllun Viðskiptablaðsins síðustu daga hefur komið í ljós að kostnaðaráætlun fyrir byggingu sjúkrahússins gerir ráð fyrir mun meiri kostnaði en hingað til hefur verið kynnt. Blaðið segir frá því vef sínum í dag, að beiðni þess um ítarlegt kostnaðarmat fyrir nýtt háskólasjúkrahús hafi ekki enn verið tekin til greina. Blaðið segir að kostnaður við nýtt háskólasjúkrahús í Noregi, sem er talsvert minna en áformað sjúkrahús hérlendis, sé  120-130 milljarðar króna.

www.eyjan.is 28.05.2008

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-