-Auglýsing-

Með einkenni vægs hjartaáfalls

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, var lögð inn á sjúkrahús í fyrrakvöld til rannsókna vegna hjartsláttartruflana og hækkaðs blóðþrýstings. „Læknirinn sagði að um hefði verið að ræða einkenni um vægt hjartaáfall. Mér er fyrirskipað að taka það rólega og ég verð í leyfi fram yfir páska,“ segir Steinunn sem lenti á sjúkrahúsi fyrir ári vegna sams konar einkenna.

„Þá var ég á ráðstefnu erlendis. Ég hef verið á lyfjum síðan en ég átti að forðast álag og fara vel með mig. Greinilega hef ég ekki gert nóg. Nú ætla ég að taka þetta fastari tökum en hingað til,“ segir Steinunn sem var nýkomin heim af vinnufundi á Akureyri þegar hún veiktist. Hún er nú útskrifuð af sjúkrahúsinu.

www.mbl.is 20.02.2008

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-