-Auglýsing-

Mann setur hljóðan

hjartablodrur.jpgÉg hef verið að velta fyrir mér þeirri stöðu sem er uppi varðandi málefni hjartans á Íslandi og gluggað í gögn og tölur sem eru nánast ótrúlegar. Flestar þessar upplýsingar hef ég fundið í þeim fréttum og greinum sem eru hér á hjarta.net.

Stefna stjórnvalda á Íslandi 2008

Stefna stjórnavalda í samræmi við evrópsku áætlunina um heilbrigði hjartans sem undirrituð var síðastliðið sumar.

„Hvert mannsbarn sem fætt er á nýju árþúsundi hefur rétt til þess að lifa til að minnsta kosti 65 ára aldurs án þess að fá hjarta- og æðasjúkdóm sem hægt er að koma í veg fyrir”

Raunveruleg staða hjartamála

  • Hjarta- og æðasjúkdómar eru langalgengasta dánarorsök á Íslandi.
  • Árlega deyja 1800 Íslendingar þar af 700 manns úr hjarta og æðasjúkdómum eða 40%
  • Árið 2005 dóu 150 konur úr hjartasjúkdómum.
  • Sama ár dóu 56 konur úr lungnakrabbameini en 31 úr brjóstakrabbameini.
  • Það deyja fimmfalt fleiri konur úr kransæðasjúkdómum en brjóstakrabbameini.
  • Á árinu 2005 dóu um 200 karlar úr kransæðasjúkdómum.
  • Sama ár dóu 70 karlar úr lungnakrabbameini og 55 karlar létust úr blöðruhálskirtilskrabbameini.
  • Það deyja fleiri Íslendingar úr hjarta og æðasjúkdómum en öllum krabbameinunum samanlagt.
  • Biðlistar eftir hjartaþræðingu eru átta mánuðir og lengist sá listi stöðugt.
  • Tækjakaup hjartadeildar Landspítala eru háðar gjafafé.
  • Tæki sem nú eru í notkun við hjartaþræðingar notast við myndgreiningartækni síðustu aldar.
  • Gangainnlagnir á hjartadeild eru regla frekar en undantekning.
  • Heilbrigðisyfirvöld hafa enga hjartalækna á samningi við Tryggingastofnun.
  • Hjartasjúklingar eru háðir rándýru og ósveigjanlegu tilvísanakerfi sem engir aðrir sjúklingar eru háðir.
  • Það er engin prófessorsstaða við Háskóla Íslands í hjartalækningum þó svo að hjartasjúkdómar séu aðaldánarorsök þjóðarinnar.

Er furða þó mann setji hljóðan.

- Auglýsing-

Björn

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-