Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, og sænskur starfsbróðir hans, Göran Hägglund, undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um aukið samstarf landanna í lyfjamálum á fundi norrænna heilbrigðisráðherra á Gotlandi.
Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu segir að ráðherra hafi lagt áherslu á það á fundinum að efla norrænt samstarf í lyfjamálum. Gerði hann á fundinum grein fyrir tilraunaverkefni og samstarfi Íslendinga og Svía á lyfjasviði og var m.a. rætt um rafræna afgreiðslu lyfseðla.
-Auglýsing-
Í viljayfirlýsingunni er sérstaklega lögð áhersla á aukið samstarf í verðmyndun lyfja og endurgreiðslum vegna lyfjanotkunar.
www.ruv.is 04.06.2008
-Auglýsing-