-Auglýsing-

Jóhannes búinn að fá nýtt hjarta

Jóhannes Kristjánsson eftirherma gekkst undir hjartaígræðslu á Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg í fyrrinótt. Hann brosir nú hringinn og líður vel, að sögn Halldóru Sigurðardóttur, eiginkonu Jóhannesar.

„Það var hringt í okkur um fjögurleytið á mánudaginn og við vorum komin í loftið um hálfsexleytið. Jóhannes fór beint í aðgerðina þegar við komum til Gautaborgar eða um miðnætti að íslenskum tíma,“ segir Halldóra.

Að sögn Halldóru var Jóhannes kominn á gjörgæsludeild tólf klukkustundum eftir aðgerðina. „Hann var tekinn úr öndunarvél á miðnætti í nótt og vaknaði svo sjálfur síðar í nótt. Honum líður mjög vel og trúir því varla að þetta sé búið. Hann brosir bara hringinn. Hann er svo glaður. “

Halldóra hitti eiginmann sinn fyrr í morgun. „Læknarnir eru ánægðir með hversu vel aðgerðin tókst. Núna er Jóhannes að hvíla sig.“

Jóhannes fékk alvarlegt hjartaáfall í byrjun júní. Til þess að bjarga lífi hans var flogið með hann til Gautaborgar þar sem grædd var í hann hjartapumpa til þess að halda hjarta hans gangandi.

www.mbl.is 02.09.2009

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-