-Auglýsing-

Hulda í sérverkefni

Hulda Gunnlaugsdóttir forstjóri Landspítalans, sem hefur fengið ársleyfi sem forstjóri, hefur tekið að sér að tímabundna verkefnisstjórn við að hrinda í framkvæmd aðgerðaáætlun um samstarf og markvissari verkaskiptingu á milli heilbrigðisstofnana.

Á vef heilbrigðisráðuneytisins kemur fram að Hulda tekið verkefnið að sér fyrir orð Ögmundar Jónassonar, heilbrigðisráðherra. Er markmiðið að setja fram tímasetta verkáætlun sem byggist á starfi sem fram hefur farið undanfarna mánuði um hagræðingu í heilbrigðiskerfinu.

„ Er þetta gert til að ná fram markvissari rekstri heilbrigðisstofnana á næstu árum með aukinni samvinnu og skýrari verkaskiptingu innan kerfisins. Reynt verður að draga eins lítið úr þjónustu við sjúklinga og kostur er þrátt fyrir þann mikla niðurskurð í heilbrigðiskerfinu sem nú blasir við. Sömuleiðis er ætlunin að reyna að koma í veg fyrir uppsagnir starfsmanna sem mest menn geta. Við skipulagsbreytingar og breytta verkaskiptingu í starfsemi heilbrigðisstofnana er lögð rík áhersla á víðtækt samráð við fulltrúa starfsmanna og samtök þeirra,” að því er segir á vef ráðuneytisins.

Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, segir á vefnum, það afar mikilvægt að fá Huldu Gunnlaugsdóttur sem liðsauka inn í þetta starf sem unnið hefur verið í náinni samvinnu stjórnenda heilbrigðisstofnana í landinu og almannasamtaka undanfarna mánuði. Hún hafi víðtæka reynslu af skipulagsbreytingum bæði hér á landi og frá Noregi.

“Okkur hefur miðað vel í þessari vinnu en verkefnið sem við stöndum frammi fyrir er risavaxið og við verðum að nýta allt okkar besta fólk, á öllum sviðum, til að komast í gegnum samdráttinn, án þess að öryggi sjúklinga sé stefnt í voða. Til að það megi takast verðum við öll að vinna saman,” segir Ögmundur á vef heilbrigðisráðuneytisins.

www.mbl.is 09.09.2009

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-