-Auglýsing-

Hjartagátt Landspítala opnuð við Hringbraut

Ný hjartamiðstöð var opnuð formlega á Landspítala Hringbraut 15. apríl 2010.  Þessi nýja deild er í húsnæði gömlu bráðamóttökunnar á 10D og í aðliggjandi húsnæði á 10W. Hún heitir Hjartagátt Landspítala og tilheyrir lyflækningasviði.

Hjartagátt Landspítala verður opin frá klukkan 8:00 á mánudögum til klukkan 20:00 á föstudögum. Bráðaþjónusta við hjartasjúklinga um helgar verður á bráðamóttökunni í Fossvogi.

Í Hjartagátt er veitt öll almenn bráðaþjónusta fyrir hjartasjúklinga og er sú starfsemi áfram í návígi við aðra lykilstarfsemi hjartalækninga. Í Hjartagátt er einnig dag- og göngudeildarþjónusta.

Þar sem nauðsynlegt getur verið að rannsaka og vakta sjúklinga með brjóstverki, sem og önnur hjartavandamál, og ljúka slíkri vinnu fyrir lokun tekur Hjartagátt Landspítala við sjúklingum einungis til klukkan 14:00 á föstudögum.  Eftir það skal vísa/flytja sjúklinga á bráðamóttöku í Fossvogi til klukkan 8:00 á mánudagsmorgni.  Sjúklingar sem greinast í sjúkrabíl með kransæðastíflu og þeir sem eru í hjartastoppi geta þó komið í Hjartagátt  til klukkan 19:30 á föstudagskvöldum til þess að flýta fyrir því að þeir komist sem fyrst í hjartaþræðingu ef  þörf krefur.

Stjórnendur:
Davíð O. Arnar yfirlæknir
Kristín Sigurðardóttir hjúkrunardeildarstjóri

www.landspitali.is 15.04.2010

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-