-Auglýsing-

Heilbrigðisyfirvöld og lifrarbólga C

1158314 nurse 1Í ljós hefur komið að greiddar hafa verið tugir milljóna í bætur til þeirra sem smituðust af lifrarbólgu C við blóðgjafir áður en byrjað var að skima fyrir sjúkdómnum í Blóðbankanum 1992.

Vitað er um á þriðja tug blóðþega sem smituðust en frá þessu greindi ríkisútvarpið.

-Auglýsing-

Þessi ráðstöfun var ákveðin af heilbrigðisráðherra árið 2001. Árið 2005 var búið að greiða bætur til níu einstaklinga – samtals rúmlega 40 milljónir.

Þrátt fyrir þetta berast fregnir af því að fólk sé ennþá að koma fram sem hefur smitast og gengið með sjúkdóminn í áratugi án þess að hafa haft minnsta grun um það, það er alvarlegt.

Það er haft eftir Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigðisráðherra að hann hafi látað kalla eftir upplýsingum um málið – væntanlega frá sóttvarnalækni – en hann telji hinsvegar málefnalegar ástæður hljóti að liggja til grundvallar því að allsherjar rannsókn á umfangi smitsins hafi ekki farið fram.

Þetta finnast mér dæmalaus ummæli. Hvernig í ósköpunum er hægt að réttlæta það fyrir fólki að það hafi ekki þótt ástæða til að reyna hafa upp á þeim þó svo að mögulegt væri að viðkomandi gangi hugsanlega með sjúkdóm sem í verstu tilfellum getur leitt til dauða.

- Auglýsing-

Mér finnst mikilvægt að yfirvöld og þá ekki síst Landlæknir og sóttvarnarlæknir útskýri þetta mál fyrir almenningi því mér þykir þetta stóralvarlegt.

Landlæknir er eftirlitsaðili heilbrigðisþjónustu á Íslandi og mér finnst hann hafa brugðist illilega í þessu máli.

Björn Ófeigsson
bjorn@hjartalif.is

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-