-Auglýsing-

Greiða þarf komugjald vegna innlagnar á sjúkrahús

407380a.jpgKOMUGJALD hefur nú verið tekið upp vegna innlagnar á sjúkrahús. Það verður þó ekki innheimt nema einu sinni í hverjum almanaksmánuði. Sjúkratryggðir greiða almennt 6.000 kr. innlagnargjald en elli- og örorkulífeyrisþegar helmingi minna.

 

Engar breytingar voru gerðar á komugjöldum í heilsugæslunni á dagvinnutíma nú um áramótin þegar gjöld fyrir ýmsa aðra heilbrigðisþjónustu hækkuðu.

 

Um áramótin tóku gildi tvær reglugerðir um komugjöld í heilbrigðisþjónustunni. Gildir önnur fyrir sjúkratryggða en hin fyrir þá sem eru ósjúkratryggðir. Breytingar til hækkunar stafa fyrst og fremst af verðlagsbreytingum, að sögn heilbrigðisráðuneytisins.

 

- Auglýsing-

Komugjöld fyrir sjúkratryggða utan dagvinnutíma á heilsugæslustöð eða til heimilislæknis hækka nú úr 2.200 kr. í 2.600 kr. Gjöld fyrir ellilífeyrisþega 70 ára og eldri og örorkulífeyrisþega hækka um 200 kr. og verða 1.300 kr.

 

Gjöld vegna vitjana lækna hækka einnig. Fyrir vitjun læknis á dagvinnutíma greiða sjúkratryggðir nú almennt 2.800 kr. í stað 2.400 kr. áður en t.d. ellilífeyrisþegar greiða helmingi minna. Læknisvitjun utan dagvinnutíma kostar almennt 3.800 kr. fyrir sjúkratryggða en var 3.300 kr.

Morgunblaðið 02.01.2009

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-