Gáttatif getur verið erfitt viðureignar. Hér á landi er talið að um 5000 manns þjáist af sjúkdómnum og líkur eru á því að þreföldun verði í þeim hóp á næstu áratugum.
Gáttatif (eða atrial fibrillation, oft kallað A-fib) er algeng hjartsláttartruflun þar sem rafboð í hjarta geta valdið óreglulegum og oft of hröðum hjartslætti. Þetta truflar eðlilega samdrætti gáttanna (efri hólf hjartans) sem leiðir til ójafnvægis í blóðflæði. Þá tengist gáttatif upp undir þriðjungi tilvika hjartaáfalla.
Einkenni gáttatifs:
- Óreglulegur hjartsláttur: Hjartað getur slegið óreglulega, hraðar eða hægar en venjulega.
- Hjartsláttarónot eða truflanir: Fólk getur fundið fyrir titringi eða flökti í brjóstinu.
- Þreyta: Vegna óreglulegs blóðflæðis og súrefnisupptöku getur fólk fundið fyrir almennri þreytu.
- Andþyngsli: Öndun getur orðið erfiðari.
- Svimi eða yfirliðstilfinning: Óreglulegur hjartsláttur getur truflað blóðflæði til heilans, sem veldur svima.
- Brjóstverkur: Þetta getur bent til álags á hjartað.
Orsakir gáttatifs:
Gáttatif getur komið fram vegna margra þátta en algengustu orsakirnar eru:
- Háþrýstingur
- Hjartasjúkdómar og þá sérstaklega hjartabilun eða kransæðasjúkdómur
- Hjartaáfall
- Skjaldkirtilsvandamál, sérstaklega ofvirkur skjaldkirtill
- Sykursýki
- Áfengisneysla sér í lagi í miklu magni
- Lungnasjúkdómar
- Svefntruflanir eins og kæfisvefn
- Háþrýstingur í lungnablóðrásinni
Afleiðingar gáttatifs:
Gáttatif eykur hættuna á blóðtappamyndun vegna þess að blóð getur safnast fyrir í gáttunum og myndað blóðtappa. Ef blóðtappi fer út í blóðrásina getur það valdið heilablóðfalli. Fólk með gáttatif er einnig í hættu á hjartabilun vegna álags á hjartavöðvann.
Meðferð við gáttatifi:
Meðferð miðar að því að koma hjartslættinum í rétt horf og draga úr hættunni á fylgikvillum eins og heilablóðfalli. Algengustu meðferðirnar eru:
- Lyfjagjöf:
- Blóðþynningarlyf: Notuð til að koma í veg fyrir myndun blóðtappa og minnka hættu á heilablóðfalli.
- Hjartsláttarstillandi lyf: Hjálpa til við að stjórna hraða hjartsláttarins og koma honum aftur í eðlilegt horf.
- Rafvending (cardioversion): Rafstuð notað til að koma hjartsláttartakti aftur í rétt horf.
- Ablation: Aðgerð sem felst í því að brenna eða frysta þau svæði í hjartanu sem valda óreglulegum hjartslætti. Þetta einangrar og brýtur upp rafboðin sem valda hjartsláttaróreglunni.
- Gangráður: Í sumum tilfellum er ígræðsla gangráðs nauðsynleg til að stjórna hjartslætti.
Lífsstílsbreytingar:
- Minni áfengisneysla
- Halda blóðþrýstingi í skefjum
- Regluleg hreyfing
- Gott mataræði, sérstaklega með áherslu á hjartaheilbrigði
Gáttatif er oft hægt að stjórna með réttum meðferðum og lífsstílsbreytingum, en það er mikilvægt að leita til læknis ef einkenni koma fram og vera í góðu eftirliti í framhaldinu.
Björn Ófeigs.