-Auglýsing-

Framtíðarsýn spítala og háskóla samofin

Nýtt klínískt rannsóknasetur Landspítalans og Háskóla Íslands var opnað á dögunum. Setrið er áfangi í að auka samstarf stofnananna tveggja en framtíðarsýn forstjóra LSH er að heilbrigðismenntun færist meira og minna til spítalans.

„Þegar við flytjum inn í nýtt hús vona ég að búið verði að samþætta enn frekar starfsemi Landspítalans og háskólans. Þróunin er öll í þessa átt að heilbrigðishluti háskólanna sé rekinn saman en ekki sem tvær stofnanir. Á það bæði við um húsnæði og stjórnkerfið,” segir Björn Zoëga, forstjóri LSH. Björn segir að fyrirmyndin við uppbygginguna sé í sínum huga Karólinska sjúkrahúsið í Stokkhólmi, sem er talið eitt fremsta háskólasjúkrahús í heimi.

„Við erum með heilbrigðisþjónustu sem er hátt skrifuð í heiminum. Mæling OECD sýnir að rannsóknir og vísindi á heilbrigðissviði hér á landi er meðal þess mesta sem gerist. Við viljum byggja á þessu og erum því að auka svokallaðar klínískar rannsóknir.” Þar vísar Björn til hagnýtra rannsókna, eins og til dæmis á lyfjum og lækningatækjum, en LSH hefur lengi verið í fremstu röð í grunnrannsóknum. Hann segir að fyrirtæki leiti nú frekar til stofnana um samstarf í stað samstarfs við einstaklinga áður, sem byggir undir áðurnefnda samþættingu LSH og HÍ sem er mikil fyrir.

„Á hverju ári erum við að mennta um ellefu hundruð nemendur og erum því ein af fimm stærstu menntastofnunum landsins,” segir Björn. „Það má líka benda á það að fjórar af hverjum tíu vísindagreinum Íslendinga hafa tengsl inn á Landspítalann og vel yfir tíu prósent af rekstrarkostnaði spítalans er í raun kostnaður við að vera háskólaspítali.”

Björn vitnar til orða Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra á læknadögum nýverið um að HÍ „ætli og verði” að fylgja spítalanum eftir í uppbyggingu.

Katrín segist hafa viljað ítreka að við Hringbraut rísi ekki aðeins spítali heldur einnig mennta- og rannsóknastofnun. Aðspurð hvort á teikniborðinu séu áform um byggingar á vegum háskólans sem tengjast muni nýju sjúkrahúsi segir Katrín ekkert í hendi hvað það varðar. „Í framtíðinni er hugsunin hins vegar að öll heilbrigðismenntun háskólans verði með einum eða öðrum hætti tengd sjúkrahúsinu. Hins vegar þarf vart að taka það fram að hugsunin er ekki sú að eyða stórum fjármunum í þetta.”

- Auglýsing-

svavar@frettabladid.is

www.visir.is 02.02.2010

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-