-Auglýsing-

Flestir deyja úr blóðrásarkvillum

Helsta dánarmein Íslendinga er nú sem áður fyrr sjúkdómar í blóðrásarkerfi og þá aðallega hjarta- og heilaæðasjúkdómar. Á síðasta ári voru skráð 140 ótímabær dauðsföll á landinu.

Hagstofa Íslands hefur tekið saman tölur yfir dánarmein Íslendinga árið 2009. Gögnin byggja á dánarvottorðum allra einstaklinga sem létust á árinu og áttu lögheimili á Íslandi við andlát.

Árið 2009 létust 2.002 einstaklingar, 969 konur og 1.033 karlar. Alls létust 729 úr blóðrásarsjúkdómum en næstalgengasta dánarmeinið er krabbamein. Þriðji stærsti flokkur dánarmeina eru sjúkdómar í öndunarfærum en úr þeim dóu 175 einstaklingar á árinu.

Dauðsföll vegna ytri orsaka eru fjórði stærsti flokkurinn. Á árinu 2009 létust 118 af slíkum orsökum. Þar af létust 10 í umferðarslysum og 36 féllu fyrir eigin hendi sem er svipaður fjöldi og undanfarin ár.

Á árinu voru skráð 140 ótímabær dauðsföll. Það eru andlát vegna tiltekinna dánarorsaka sem hefði mátt komast hjá með viðeigandi meðferð eða forvörnum.

www.ruv.is 21.09.2010

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-